Gerðuberg

 

Grannmetislög

17.05.2010

Grannmetislög verða flutt sunnudaginn 16. maí kl. 14.00 af Guðrúnu Jóhönnu Ólafsdóttur og Caput hópnum eftir lögum Hauks Tómassonar. Ljóðin eru úr bókinni Grannmeti og átvextir eftir Þórarin Eldjárn.

Tónleikarnir eru þeir síðustu á þessari önn úr tónleikaröð Gerðubergs; Tóney í Gerðubergi.
Upptaka á ljóðunum var gerð í Salnum í Kópavogi árið 2009 og er stefnt að því að diskurinn komi út á næstu dögum.

 Aðgangur á tónleikana er ókeypis. 

Aðrir flytjendur eru: Kolbeinn Bjarnason á flautu, Eiríkur Örn Pálsson á trompet, Zbigniew Dubik á fiðlu, Siguður Halldórsson á selló og Snorri Sigfús Birgisson á píanó. Stjórnandi er Guðni Franzson.

Tóney í Gerðubergi er tónleikaröð ætluð tónlistarunnendum á öllum aldri, með þátttöku leikinna sem lærðra, ungra sem aldinna, fjölbreytt efnisskrá í flutningi upprennandi tónlistarfólks jafnt sem atvinnumanna.  Lögð er áhersla á breiða þátttöku, söng og hljóðfæraleik en einnig tengingu við heim leikhússins og dansins.  Gestgjafi og umsjónarmaður er Guðni Franzson tónlistarmaður en hann er jafnframt stofnandi Tóneyjar; miðstöðvar fyrir tónlist, dans og sviðslistir, sjá www.toney.is.

Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.00. 

Nánari upplýsingar veitir Hólmfríður Ólafsdóttir, verkefnastjóri; holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is og í síma 575-7702 / 868-1851 eða
Guðni Franzson; gudni@toney.is og í síma 862-4913.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook