Gerðuberg

 

Breiðholt - í augnablikinu

11.05.2010

Sunnudaginn 16. maí kl. 14.00 opnar Friðgeir Helgason ljósmyndasýninguna Breiðholt - Í augnablikinu.

Á opnuninni býður Friðgeir gestum upp á gumbó (pottrétt frá New Orleans).
Leiðsögn verður kl. 15.30 með þeim Friðgeiri og ljósmyndaranum Spessa þar sem þeir skoða Breiðholtið á nýstárlegan hátt.

Sýningin er á dagskrá listahátíðar í Reykjavík 2010

Friðgeir Helgason er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1966. Hann flutti í Breiðholtið eftir Vestmannaeyjagosið og bjó í Viðlagasjóðshúsi við Keilufell. Hann stundadi nám í Fellaskóla fram til 13 ára aldurs en flutti þá frá Reykjavík.

Friðgeir segir sjálfur um verkefnið:
„Það sem vakti áhuga minn á að ljósmynda Breiðholtið var sú staðreynd að ég fann sterkar tengingar við umhverfið og að ég ljósmyndaði það sem flestir litu framhjá í sínu daglega amstri.  Ég reyndi að sjá fegurðina í hinu einfalda og venjulega. Ég hef engan áhuga á að ljósmynda Gullfoss og Geysi, það hefur verið gert til hlítar.
Á sinn sérstaka hátt finnst mér Breiðholtið hafa yfir sömu fegurð að bera og hvert annað hverfi, maður verður bara að gefa sér tíma til að stoppa og horfa á það sem fyrir augu manns ber. Má þar nefna Bónus að næturlagi, einmanna rennibraut eða innkaupakerrur sem hafa verið skyldar eftir úti á víðavangi.”

Sýningin stendur frá 16. maí til 30. júní 2010 og er opin virka daga frá 11-17 og um helgar frá kl. 13-16. Athugið að það er lokað um helgar í júní.

Ókeypis aðgangur

Nánari upplýsingar fást hjá Hólmfríði Ólafsdóttur verkefnastjóra, holmfridur.olafsdottir@reykjavik.is; síma: 575-7702 eða 868-1851

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook