Gerðuberg hlýtur Vorvindaviðurkenningu IBBY
18.05.2010
Á Vorvindahátíð IBBY á Íslandi (The International Board on Books for Young People) sem haldin var í Gunnarshúsi 16. maí s.l. voru veittar fjórar viðurkenningar fyrir framlag til barnamenningar árið 2010. Fjórir aðilar hlutu viðurkenningu að þessu sinni; Halldór Baldursson, myndlistarmaður, Iðunn Steinsdóttir, rithöfundur, Kristín Arngrímsdóttir, myndlistarmaður, og Menningarmiðstöðin Gerðuberg.
IBBY á Íslandi hefur veitt viðurkenningar fyrir framlag einstaklinga og stofnana til barnamenningar frá árinu 1987 og er þetta mikill heiður og viðurkenning fyrir Gerðuberg sem frá upphafi hefur lagt mikinn metnað í að bjóða upp á viðburði jafnt fyrir börn, með börnum og um börn og þeirra menningu. Sjá nánar um IBBY á Íslandi á www.ibby.is
Það sem af er þessu ári hefur verið boðið upp á mjög fjölbreytta og vandaða dagskrá í Gerðubergi.
Frá janúar til maí hefur verið boðið upp á samtals 37 viðburði og þar af eru 15 sem tengjast barnamenningu. Í haust er síðan stefnt að því að setja upp lifandi og skemmtilega sýningu sem ætlað er að vekja áhuga og forvitni barna á sögum og persónum úr norrænu goðafræðinni. Sýningin verður framlag Gerðubergs á Norrænni menningarhátíð sem haldin verður í Reykjavík í tengslum við þing Norðurlandaráðs í kringum mánaðarmótin október/nóvember. Í tengslum við sýninguna verður boðið upp á leiðsögn, námskeið o.fl. sem tengist norrænu goðafræðinni.