Gerðuberg

 

Breiðholt í upphafi og augnablikinu

21.06.2010

Breiðholt í upphafi og augnablikinu

Nú standa yfir í Gerðubergi tvær spennandi sýningar á ljósmyndum úr Breiðholti. Annars vegar sýning á nýlegum myndum Friðgeirs Helgasonar og hins vegar gamlar ljósmyndir frá Ljósmyndasafni Reykjavíkur.

Breiðholt í augnablikinu er heiti sýningar Friðgeirs Helgasonar á myndum teknum í Breiðholtinu sumarið 2008. Friðgeir er fæddur í Vestmannaeyjum árið 1966 en hann flutti í Viðlagasjóðshús í Keilufelli eftir Vestmannaeyjagosið. Friðgeir hefur sterkar tengingar við hverfið, hann sér fegurðina í hinu einfalda og venjulega og hefur gaman af því að ljósmynda það sem flestir líta framhjá í sínu daglega amstri. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík.

Breiðholt í upphafi er heiti sýningar á ljósmyndum úr safni Ljósmyndasafns Reykavíkjur sem teknar voru í Breiðholti á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Myndefnið er fjölbreytilegt en við val ljósmynda á sýninguna var haft að leiðarljósi að sýna uppbyggingu og börn. Það sem fyrir augu ber eru því framkvæmdir og fullbúin hús, börn að leik og fólk að störfum. Tíðarandinn skín vel í gegn á þessum stóru svart hvítu ljósmyndum. Einstaka persónur á myndunum eru nafngreinar en flestar þeirra óþekktar og nafnlausar – þekkir þú einhvern?

Sýningarnar standa til 30. júní.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook