Gerðuberg

 

Þetta vilja börnin sjá! á ferð um landið

01.07.2010

Sýning Þetta vilja börnin sjá! hefur flakkað um landið og hefur þegar opnað í Menningarmiðstöð Hornafjarðar og í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.
Í haust fer sýningin til Hvolsvallar á Sögusetrið og þaðan í Safnahúsið á Húsavík.

Sýningin Þetta vilja börnin sjá! hefur verið haldin árlega í Gerðubergi frá árinu 2002. Á sýningunni má sjá myndskreytingar úr nýútkomnum íslenskum barnabókum. Myndskreytarnir keppa jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Í ár hlaut Ragnheiður Gestsdóttir Dimmalimm verðlaunin fyrir bókina Ef væri ég söngvari.

Þátttakendur í sýningunni í ár eru:
Arnheiður Borg, Áslaug Jónsdóttir, Björk Bjarkadóttir, Brian Pilkington, Bryndís Björgvinsdóttir, Brynhildur Jenný Bjarnadóttir, Erla Sigurðardóttir, Freydís Kristjánsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson, Halla Sólveig Þorgeirsdóttir, Halldór Baldursson, Helga Egilson, Jean Posocco, Jón Ólafur Ólafsson, Karl J. Jónsson, Kristín Arngrímsdóttir, Linda Ólafsdóttir, Phil Nibbelink, Ragnheiður Gestsdóttir, Robekka Art Studio, Rósa Matt, Sigríður Lillý Baldursdóttir, Sigrún Eldjárn, Sólveig Stefánsson, Þórgunnur Oddsdóttir.
 
Starfsfólk Gerðubergs og Borgarbókasafnsins buðu skólabörnum upp á spennandi dagskrá á sýningartímabilinu í Gerðubergi þar sem þau fengu að skoða sýningarnar, og taka þátt í spennandi leikjum á bókasafninu. Á sama tíma opnaði sýningin Strengir, þar sem Messíana Tómasdóttir sýndi leikbrúður, grímur og búninga.

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook