Jazzsöngsmiðja Kristjönu Stefáns
01.10.2010
Í jazzsöngsmiðjunni fer Kristjana Stefánsdóttir, söngkona, yfir helstu stílbrigði í sungnum jazzi s.s. „ballad“, „medium swing“, „uptempo swing“ og „latin“. Einnig verður farið í spuna og blús.
Meðleikari og meðkennari verður Agnar Már Magnússon, píanóleikari. Kristjana og Agnar Már eru bæði starfandi kennarar við Tónlistarskóla FÍH og hafa í gegnum tíðina unnið mikið saman á tónlistarsviðinu.
Námskeiðið fer fram í Gerðubergi og hefst kl.10.00 og stendur til kl.16.00, matarhlé verður gert kl.12.30. Námskeiðið kostar 5.000 kr og þarf að greiðast fyrir 20. ágúst.
Það komast 10 virkir nemendur að en námskeiðið er opið til áheyrnar öllum þeim sem hafa áhuga á jazztónlist.
Nemendur þurfa að hafa stundað tónlistar- og/eða söngnám. Þeir þurfa að hafa undirbúið a.m.k. tvö lög í mismunandi stíl og hafa með sér nótur af þeim í sinni tóntegund.
Skráning er hafin á: gerduberg@reykjavik.is
Smellið hér til að sjá nánari upplýsingar...
Kynnið ykkur dagskrá Jazzhátíðar Reykjavíkur...