Gerðuberg

 

Handverkskaffi - Að fanga liti jurtanna

31.08.2010

Fyrsta handverkskaffi haustsins í Gerðubergi verður miðvikudagskvöldið 1. september kl. 20. Þetta kvöld gefst gestum kostur á að kynnast hvernig lita má garn eða klæði með jurtum úr íslenskri náttúru. Það eru þær Sigrún Helgadóttir og Þorgerður Hlöðversdóttir sem sjá um kynninguna og munu þær leiða viðstadda um töfraheim jurtalitunar. Á staðnum verða sýnishorn af jurtum og jurtalituðu garni.

Sigrún er líf- og umhverfisfræðingur en Þorgerður er textíllistakona og kennari. Þær hafa árum saman unnið að jurtalitun og m.a. kennt hana á námskeiðum hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands.

Gerðuberg hefur staðið fyrir handverkskaffi fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði frá haustinu 2008. Markmiðið með þessum kvöldum er að bjóða upp á notalega stund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og jafnvel tekið í handavinnu. Boðið er upp á stuttar skemmtilegar kynningar og stundum sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins. Handverkskaffið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22, aðgangur er ókeypis.

Dagskrá haustsins er eftirfarandi:
6. október – Áttu apahönd? – Björn Finnsson kennir gestum að skrauthnúta.
3. nóvember – Blómarósir – Jeab kennir austurlenska blómagerð úr vír og nælonsokkum.
1. desember – Jóladjásn – Kristín Arngrímsdóttir kennir jólalega klippimyndagerð.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook