Viðburðir haustsins í Gerðubergi!
02.09.2010
Haustdagskrá Gerðubergs hefur nú verið birt á heimasíðunni, www.gerduberg.is undir liðnum Viðburðadagatal. Í boði verða margir spennandi viðburðir fyrir alla aldurshópa.
Jazz og málverkasýning í ágúst
Dagskráin hefst með þátttöku í Jazzhátíð Reykjavíkur og þar leikur Kristjana Stefánsdóttir lykilhlutverk. Miðvikudaginn 25. ágúst stýrir hún jazzsöngsmiðju og fimmtudagskvöldið 26. ágúst stígur Kristjana á svið ásamt félögum sínum og flytur jazzstandarda og bebop. Fimmtudaginn 26. ágúst opnar Aðalbjörg Þórðardóttir málverkasýninguna Hugarflug. Viðfangsefni hennar eru svanir sem sagnaminni, náttúrufyrirbrigði og táknmyndir sálarinnar.
Myndverkasýningar haustsins
Þrjár sýningar verða opnaðar í september. Jón Laxdal Halldórsson sýnir listaverk unnin úr pappír úr tímaritinu Fálkanum. Í Boganum sýnir Henrik Árnason Aunio abstrakt málverk og í kaffihúsinu verða sýndar ljósmyndir teknar af Gísla Hjálmari Svendsen. Í nóvember sýnir Svava Sigríður Gestsdóttir vatnslitamyndir og málverk í Boganum.
Safnarahornið – uppistand og jólasýning
Síðasti sýningardagur eldhúsáhalda þeirra Sigurðar Árnasonar og Þórarins Eldjárns er sunnudagurinn 12. september. Þann dag kl. 14 munu þeir kveðja sýninguna með uppistandi. 18. september verður safnarahornið svo komið í jólabúning en þá hefst þar sýning á gömlum jólakortum, jólatrjám, jólaskrauti og leikföngum.
Dagskrá fyrir börn í samstarfi við Möguleikhúsið
Ævintýravagninn er samstarfsverkefni Gerðubergs og Möguleikhússins. Hér er á ferðinni leiklistarsmiðja fyrir krakka á aldrinum 8 – 12 ára. Smiðjan verður sunnudagana 12. september, 3. október og 14. nóvember. Þá mun Möguleikhúsið sýna barnaleikritin Prumpuhólinn, Alla Nalla og tunglið og Völuspá á haustmánuðum. +
Syngjum og kveðum
Enn verður sungið og kveðið í kaffihúsi Gerðubergs, þriðja sunnudag í hverjum mánuði. Það eru þau Bára Grímsdóttir og Chris Foster sem standa fyrir dagskránni og verður sérstakt þema hverju sinni. Í september eru það dýrin okkar stór og smá. Álfar, tröll og vættir í október og loks hetjur hafsins í nóvember.
Iðunn og félagar
Kvæðamannafélagið Iðunn hefur aðsetur í Gerðubergi og verður með kvæðalagaæfingar fyrsta miðvikudagskvöld hvers mánaðar og félagsfund fyrsta föstudagskvöld hvers mánaðar frá október til desember.
Ormurinn ógnarlangi – söguheimur norrænnar goðafræði
Ævintýraheimur norrænu goðafræðinnar mætir gestum Gerðubergs sem hitta fyrir goð, jötna og skrýtnar skepnur á sýningunni Ormurinn ógnarlangi sem verður opnuð 31. október. Kristín Ragna Gunnarsdóttir er hönnuður og sýningarstjóri. Sama dag opnar einnig sýningin Hávamál þar sem getur að líta myndskreytingar Kristínar Rögnu við væntanlega bók þar sem Þórarinn Eldjárn enduryrkir hina fornu speki fyrir börn.
Norræna goðafræðin – námskeið fyrir börn og fullorðna
Í nóvember hefur Þórarinn Eldjárn umsjón með tveggja kvölda námskeiði um Hávamál, hina fornu lífsspeki Óðins. Þá verður Kristín Ragna Gunnarsdóttir einnig með tveggja kvölda námskeið þar sem fjallað verður um norrænu goðafræðina sem uppsprettu nýrra verka og er námskeiðið ætlað fólki í skapandi námi og starfi. Ilmur Stefánsdóttir stýrir listsmiðju fyrir börn 7. nóvember þar sem þeim býðst að búa til valsham Freyju og hamar Þórs.
Ritþing – Pétur Gunnarsson
Laugardaginn 13. nóvember eiga gestir Gerðubergs stefnumót við Pétur Gunnarsson á ritþingi. Stjórnandi þingsins er Torfi H. Tulinius og spyrlar með honum þau Soffía Auður Birgisdóttir og Kristján Kristjánsson.
Þórbergur – bókmenntanámskeið
Í október hefur Pétur Gunnarsson, rithöfundur, umsjón með bókmenntanámskeiði sem ber yfirskriftina Þórbergur í endurnýjun lífdaga.
Kellíngabækur
Konur kynna nýútkomin ritverk sín með upplestrum í Gerðubergi í nóvember. Dagskráin er haldin í samstarfi við Góugleði- og Fjöruverðlaunahópinn.
Handverkskaffið
Að venju verður handverkskaffið haldið fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði. Dagskráin er fjölbreytt; jurtalitun, skrauthnútar, nælonsokkarósir og jólalegar klippimyndir.
Klassík í hádeginu
Í október og nóvember verða klassísk hádegi í Gerðubergi. Sem fyrr er Nína Margrét Grímsdóttir listrænn stjórnandi og verða tónleikarnir í boði á föstudögum með endurtekningu á sunnudögum.