Gerðuberg

 

Ljósmyndasýning í kaffihúsinu

02.09.2010

Ísland í ramma

 

Gísli Hjálmar Svendsen sýnir ljósmyndir sem hann hefur tekið á ferðum sínum um Ísland síðustu tvö ár í kaffihúsi Gerðubergs.  

Gísli eignaðist sína fyrstu alvöru ljósmyndavél, sem var RICOH KR10, árið 1980 þega hann var rúmlega tvítugur. Sama vetur fékk hann tilsögn í grunnþáttum ljósmyndunar hjá Leó Jóhannssyni, ljósmyndara á Ísafirði og stundaði ljósmyndun markvisst næsta áratug. Þá lagði hann myndavélina til hliðar um tíma en tók upp þráðinn árið 2007. 

Gísli Hjálmar Svendsen er fæddur í Tromsö í Noregi 1959 en flutti fljótlega eftir fæðingu með móður sinni til Íslands og bjó í æsku á ýmsum stöðum á landinu. Ellefu ára flutti hann til Ísafjarðar og bjó á Vestfjörðum fram á fullorðinsár. Þar liggja sterkustu ræturnar. Gísli hefur stundað ýmis störf um ævina, lengst af sem vélstjóri til sjós og lands en leggur nú stund á lögfræðinám.

Sýningin stendur frá 4. september til 31. október.

Hún er opin virka daga frá 10 til 16 og um helgar frá 13 til 16.


 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook