Gerðuberg

 

Möguleikhúsið sýnir Langafa prakkara

26.02.2012

Bækur Sigrúnar Eldjárns um Langafa prakkara hafa um árabil notið mikilla vinsælda meðal yngstu lesendanna. Í þessari leikgerð Péturs Eggerz er stuðst við bækurnar Langafi drullumallar og Langafi prakkari. Leikritið var fyrst sýnt árið 1999 og urðu sýningar þá rúmlega 150 talsins.

Í leikritinu segir frá lítilli stúlku, Önnu, og langafa hennar. Þó langafi sé blindur og gamall er hann alltaf tilbúinn að taka þátt í einhverjum skemmtilegum uppátækjum með Önnu litlu. Hann passar hana á daginn þegar pabbi hennar og mamma eru í vinnunni. Þá hefur hann nægan tíma til að sinna henni og þau gera ýmislegt skemmtilegt saman. Þau skoða mannlífið, baka drullukökur, veiða langömmur og fleira. Þetta er enginn venjulegur langafi …

Langafi og Anna eru leikin af þeim Pétri Eggerz og Aino Freyju Järvelä.
Leikstjóri Pétur Eggerz, búninga gerir Katrín Þorvaldsdóttir, leikmynd er hönnuð af leikhópnum og tónlist eftir Vilhjálm Guðjónsson.

Sýningartími er 45 mínútur. Miðaverð kr. 2.000.-

Miðapantanir í s. 562 2669 og á moguleikhusid@moguleikhusid.is

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook