Gerðuberg

 

Barnaleikritið Prumpuhóllinn í Gerðubergi

01.02.2012

 

Hulda er nýflutt úr borginni og upp í sveit. Þegar hún fer í feluleik með Halla bróður sínum vill ekki betur til en hún villist og ratar ekki heim. Henni líst ekkert á þetta umhverfi þar sem allt er framandi; lyktin er náttúrufýla, grasið stingur og það eru pöddur út um allt!

Við sérkennilegan hól sem gefur frá sér dularfull hljóð hittir hún Steina. Hann er kátur tröllastrákur í skrítnum fötum sem segir Huldu að hóllinn sé í raun pabbi hans. Hann hafi lent í sólargeisla og orðið að steini eftir að hafa borðað rosalega mikinn hundasúrugraut. En hundasúrugrauturinn varð ekki að steini. Ónei, hann ólgar enn svo drynur í hólnum. Og fýlan..maður lifandi!

Prumpuhóllinn var frumsýndur í Möguleikhúsinu árið 2002 og sýndur rúmlega 100 sinnum á næstu tveimur leikárum.

 

 

Höfundur Prumpuhólsins er Þorvaldur Þorsteinsson og leikstjórn er í höndum Péturs Eggerz. Leikmynd og búninga hannaði Messíana Tómasdóttir. Tónlistin er eftir Guðna Franzson. Leikarar eru Pétur Eggerz og Anna Brynja Baldursdóttir.  

Prumpuhóllinn er ætlaður áhorfendum á aldrinum 2ja - 10 ára.

Sýningartími er 45 mínútur. Miðaverð kr. 2.000.-

Miðapantanir í s. 897 1813 og á moguleikhusid@moguleikhusid.is

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook