Bókakaffi - Ferðadagbækur Sigrúnar Eldjárn
24.10.2011
Miðvikudaginn 26. október kl. 20 mætir Sigrún Eldjárn rithöfundur og myndlistamaður með mis-rykfallnar ferðadagbækur sínar, segir frá þeim og sýnir úr þeim vel valdar, skrautlegar og skrítnar opnur. Sigrún heldur jafnan dagbækur á ferðum sínum, myndskreytir þær, safnar í þær úrklippum, nafnspjöldum og ýmsu smálegu auk þess sem hún skrifar um ferðina. Þessar persónulegu og skemmtilegu bækur mun hún sýna gestum bókakaffisins og er öðrum ferðalöngum velkomið að mæta með eigin dagbækur.
Í Bókakaffinu er spjallað um bækur af ýmsu tagi á léttum nótum á meðan gestir kaffihússins njóta veitinga í notalegu andrúmslofti. Markmiðið er að kynna áhugaverðar bókmenntir og ræða um þær á óformlegan hátt svo og að sýna fjölbreytileika íslenskra bókmennta og sagnamennsku.
Umsjón: Borgarbókasafn Reykjavíkur
Bókakaffið er nýjung í dagskrá Gerðubergs en boðið verður upp á dagskrá í kaffihúsinu fjórða miðvikudagskvöld hvers mánaðar frá september fram í byrjun desember. Fyrsta miðvikudagskvöld mánaðarins er Handverkskaffi, annað miðvikudagskvöld er Hverfiskaffi, það þriðja er Heimspekikaffi og það fjórða er Bókakaffi. Það er því um að gera að kíkja við og eiga notalega stund í kaffihúsinu og taka þátt í skemmtilegri og fræðandi dagskrá.
Bókakaffi - dagskrá haustsins
Handverkskaffi - dagskrá haustsins
Hverfiskaffi - dagskrá haustsins
Heimspekikaffi - dagskrá haustsins