Vel heppnað ritþing með Vigdísi Grímsdóttur
09.11.2011
Laugardaginn 5. nóvember kl. 13:30 - 16:00
Aðgangur ókeypis
Stjórnandi: Jórunn Sigurðardóttir
Spyrill með henni: Þóra Sigríður Ingólfsdóttir
Hrafn Jökulsson aðstoðaði við undirbúning
Ellen Kristjánsdóttir syngur
Ritþing Gerðubergs hafa verið haldin frá árinu 1999 og eiga nú fastan sess í menningarlífi borgarinnar. Á þinginu var leitast við að veita persónulega innsýn í líf og feril Vigdísar Grímsdóttur. Stjórnandi ritþingsins var Jórunn Sigurðardóttir og spyrill með henni Þóra Sigríður Ingólfsdóttir. Hrafn Jökulsson var þeim til aðstoðar við undirbúning þingsins. Á ritþinginu las Vigdís brot úr verkum sínum og Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson fluttu nokkur lög.
Í kaffihúsi Gerðubergs stendur nú sýning á myndum Vigdísar sem hún málaði samhliða skrifum nýju skáldsögunnar, Trúir þú á töfra?
Sjá nánar um sýninguna hér ...