LeikVerk - síðasta sýningarhelgi
04.11.2011
Sýningunni LeikVerk lýkur sunnudaginn 6. nóvember. Á sýningunni eru afar fjölbreytt og skemmtileg verk sem eiga það öll sameiginlegt að fela í sér leik á einn eða annan hátt. Þar má finna vöru- og fatahönnun, leirlist, silfursmíði, leikföng og myndlist svo nokkuð sé nefnt. Verkin á sýningunni bera með sér þann kraft og hugmyndagöfgi sem býr í hönnun og handverki hér á landi. Þátttakendur í sýningunni eru tuttugu og sjö talsins en nánari upplýsingar um sýnendur og verk þeirra má nálgast hér.
Sýningin LeikVerk er samstarfsverkefni Gerðubergs og HANDVERKS OG HÖNNUNAR. Sýningarstjóri er Anna Leoniak, arkitekt og vöruhönnuður. Opnunartími Gerðubergs er kl. 13-16 um helgar.