Hverfiskaffi - Fjölmenningarhverfið Breiðholt
08.11.2011
Þriðja Hverfiskaffið verður haldið miðvikudaginn 9. nóvember kl. 20. Að þessu sinni verður augum beint að fjölmenningunni í Breiðholti og mun Ágústa H. Gísladóttir, frístundaráðgjafi á Þjónustumiðstöð Breiðholt hafa umsjón með dagskránni. Formælendur hafa stutta tölu og munu síðan svara spurningum og spjalla við fólk yfir kaffinu. Þeir eru: Raúl Sáenz, formaður Fjölmenningarráðs Reykjavíkur, Ágústa Unnur Gunnarsdóttir, kennari á fjölmenningarbraut Fjölbrautarskólans í Breiðholti, Falasteen Abdu Libdeh, fulltrúi frá Hverfisráði Breiðholts, Karen H. Theodórsdóttir Verkefnastjóri Félagsvina hjá Rauða krossinum í Reykjavík auk þess sem fulltrúi ungra innflytjenda mætir á svæðið.
Hverfiskaffið er nýjung í dagskrá Gerðubergs en boðið verður upp á dagskrá í kaffihúsinu annað miðvikudagskvöld hvers mánaðar frá september fram í byrjun desember. Fyrsta miðvikudagskvöld mánaðarins er Handverkskaffi, annað miðvikudagskvöld er Hverfiskaffi, það þriðja er Heimspekikaffi og það fjórða er Bókakaffi. Það er því um að gera að kíkja við og eiga notalega stund í kaffihúsinu og taka þátt í skemmtilegri og fræðandi dagskrá.
Handverkskaffi - dagskrá haustsins
Hverfiskaffi - dagskrá haustsins
Heimspekikaffi - dagskrá haustsins
Bókakaffi - dagskrá haustsins