Málshættir í fókus í Gerðubergi
10.11.2011
Laugardaginn 12. nóvember kl. 14 opnar ljósmyndasýningin Málshættir í fókus í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Það eru félagsmenn í Fókus - félagi áhugaljósmyndara sem sýna verk sín en félagið stendur reglulega fyrir ljósmyndasýningum. Að þessu sinni er þemað málshættir, en myndirnar á sýningunni eiga það sammerkt að túlka íslenska málshætti.
Málshættir eru skilgreindir sem skýr stuttorð málsgrein, oftast ein setning, sem skilst án samhengis. Margir þeirra skírskota til almennt viðurkenndra sanninda en aðrir eru einskonar spakmæli eða lífsspeki. Fjölmargir málshættir eru okkur flestum kunnir en aðrir eru minna þekktir. Allt er vænt sem vel er grænt, Allt er hey í harðindum, Þeir fiska sem róa, Maður er manns gaman, Kalt er kattar gamnið, Margar hendur vinna létt verk, Fold skal við flóði taka, Þeir fiska sem róa og Af litlu verður músin mett eru örfá dæmi um málshætti sem fangaðir eru í ljósmyndum á sýningunni.
Sýnendur eru tuttugu og níu talsins, en þeir eru: Aðalheiður Einarsdóttir - Arnar Bergur Guðjónsson – Einar Sigurþórsson – Elín Þórðardóttir – Eydís Eyjólfsdóttir – Friðrik Þorsteinsson – Guðjón Ottó Bjarnason – Guðmunda Jónsdóttir – Halldór Kr. Jónsson – Hartvig Ingólfur Ingólfsson – Hrönn Sigurgeirsdóttir – Ingibjörg Óskarsdóttir – Jón Halldór Grétarsson – Jón Þorgrímsson – Kim Mortensen – Kristín Einarsdóttir – Margrét Auðunsdóttir – Margrét Sigurðardóttir – Marteinn S. Sigurðsson – Ingunn Mjöll Sigurðardóttir – Ólafur Haraldsson – Oscar Bjarnason – Sara Elíasdóttir – Sigrún Sigurðardóttir – Sigurður Guðjón Jónsson – Valgerður H. Rúnarsdóttir – Þorgils Garðar Gunnþórsson – Þorsteinn Narfason – Þórdís Björnsdóttir.
Sýningin stendur til 8. janúar 2012 og er opin virka daga kl. 11-17 og kl. 13-16 um helgar.
Fókus félag áhugaljósmyndara var stofnað árið 1999. Félagið er opið öllum áhugamönnum um ljósmyndun, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Markmið félagsins er að skapa vettvang fyrir félagsmenn til að sinna ljósmyndun. Til þess að framfylgja þessu markmiði er farið er í ljósmyndaferðir, haldnar ljósmyndasamkeppnir, ljósmyndasýningar og fræðsluerindi um ljósmyndun. Einnig eru reglulegir félagsfundir þar sem félagar hittast, skoða myndir, ræða saman um ljósmyndun og bera saman bækur sínar. Fókus heldur úti öflugri heimasíðu þar sem skoða má fjölda mynda og nálgast upplýsingar um félagið, sjá hér.