Sýningin Perlur opnar á laugardag
10.11.2011
Verið velkomin á opnun sýningar Magdalenu Margrétar Kjartansdóttur í Gerðubergi laugardaginn 12. nóvember kl. 14. Sýningin Perlur fjallar um konur. Myndefnið Magdalenu er skáldskapur í bland við veruleika og fjallar um kvenlíkamann frá barnæsku til hinstu stundar. Sýningarheitið vísar í ritið Perlur sem gefið var út árið 1930, þar birtist eftirfarandi fróðleikur; „Leikfimi fyrir konur skal vera kvenleg” og er hugmyndin að sýningunni runnin frá þessum orðum.

Magdalena vinnur með grafískri tækni, tré- og dúkristur og handþrykki á japanskan pappír. Hún lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1984 og hefur sýnt í mörgum söfnum og galleríum t.d. á Norðurlöndunum, Ungverjalandi, Kína, Bandaríkjunum og í nær öllum söfnum hérlendis. Magdalena hefur rekið listhúsin Start Art, Meistara Jakob, Gorgeir Korpúlfsstöðum ásamt öðrum og starfað í stjórnum myndlistafélaga.
Magdalena hefur kennt grafík við Myndlistaskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands á árunum 2005-07. Hún myndskreytti ásamt fleiri listamönnum Íslendingasögurnar sem gefnar voru út af Alþingi Íslendinga. Verk eftir hana eru í eigu Listasafns Íslands, Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Kópavogs, Hafnarborgar auk erlendra léna í Svíþjóð, Noregi og Japan.
Nánari upplýsingar um Magdalenu og verk hennar má nálgast á heimasíðunni www.simnet.is/magdalena/