Gerðuberg

 

Heimspekikaffi með Gunnari Hersveini

14.11.2011

 

 

Heimspekikaffi Gerðubergs hefur verið vel tekið og á miðvikudagskvöldið kl. 20 verður síðasta heimspekikaffi haustsins í kaffihúsi Gerðubergs.

Efni kvöldsins er umræðuvenjur Íslendinga. Spurt er hvort karpsemi sé ef til vill þjóðlegur löstur sem við ættum að hlúa að og setja í verndunarflokk? Hvernig lærum við að karpa – hvernig æfum við rökræður? 

Gunnar Hersveinn, heimspekingur og rithöfundur, stjórnar umræðum. Gestur kvöldsins verður Hafþór Sævarsson háskólanemi sem mun m.a. gera grein fyrir muninum á skynsamlegri rökleiðslu og mælskulist.

Sjá nánar hér...

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook