Gerðuberg

 

Syngjum og kveðum í kaffihúsi Gerðubergs

17.11.2011

Sunnudaginn 20. nóvember kl. 14 - 16 verður á dagskrá söngstund í Gerðubergi. Að þessu sinni er yfirskriftin: Syngjum og kveðum um mat og drykk.

Gestum gefst kostur á að eiga saman góða stund, syngja og hlýða á söngva og sögu um ýmsan mat, kökur og drykki. Lögin eru blanda af íslenskum og erlendum alþýðulögum. Umsjónarmenn eru sem fyrr Bára Grímsdóttir og Chris Foster. Þeir sem koma fram að þessu sinni eru m.a. Ragnhildur Magnúsdóttir, Veska Jónsdóttir og Rumyana Þorbjarnarson frá Búlgaríu og söng- og sagnakonan Þórunn Elín Pétursdóttir. 

Gestir fá sönghefti með söng- og kvæðalögum fyrir fjöldasöng. Upplagt að taka börnin og barnabörnin með.

Chris Foster og Bára Grímsdóttir halda utan um söngstundirnar í samvinnu við Kvæðamannafélagið Iðunni og Menningarmiðstöðina í Gerðubergi.

 

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook