Gerðuberg

 

Síðasta sýningarhelgi Vigdísar Grímsdóttur

17.11.2011

Sunnudaginn 20. nóvember lýkur myndlistarsýningu Vigdísar Grímsdóttur í kaffihúsinu í Gerðubergi. Sýningin Trúir þú á töfra? ber sama titil og nýútkomin skáldsaga Vigdísar. Aðalpersóna sögunnar er stelpa sem málar rauða ketti en á sýningunni má sjá kettina sem Vigdís málaði samhliða skrifunum. 

Gefum Vigdísi orðið:

„Hún fjallar í ósköp stuttu máli um stelpu sem fær leyfi þeirra sem öllu ráða til að mála rauða ketti á múrinn umhverfis þorpið sitt - og - til að taka nú eins virkan þátt í efni sögunnar og ég mögulega gat þá málaði ég myndirnar með henni. Það gerði ég líka í þakklætisskyni fyrir söguna sem hún, í allri einlægni sinni ,sagði mér um líf sitt og fólksins síns í litla þorpinu sem liggur í djúpum dali milli hárra fjalla; þaðan sem liggur enginn vegur.“

Sýningin er opin laugardag og sunnudag kl. 13-16.

Þess má geta að Vigdís tekur þátt í Kellíngabókum hér í Gerðubergi á laugardaginn þar sem hún les kafla úr nýju bókinni.

 

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook