Gerðuberg

 

Áhugaljósmyndarar sýna í Gerðubergi

19.12.2011

Nú stendur yfir sýningin Málshættir í fókus í Gerðubergi. Á sýningunni sýna félagar í Fókus - félagi áhugaljósmyndara ljósmyndir sem eiga það sameiginlegt að túlka íslenska málshætti. Málshættir eru skilgreindir sem skýr en stuttorð málsgrein, oftast ein setning, sem skilst án samhengis. Myndefnin eru eins fjölbreytt og málshættirnir en meðal þeirra fjölmörgu málshátta sem túlkaðir eru á sýningunni eru; Sjaldan er ein báran stök, Betur sjá augu en augaAllt er hey í harðindum, Þeir fiska sem róa, Maður er manns gaman og Kalt er kattar gamnið.

Þátttakendur í sýningunni eru tuttugu og níu talsins: Aðalheiður Einarsdóttir - Arnar Bergur Guðjónsson – Einar Sigurþórsson – Elín Þórðardóttir – Eydís Eyjólfsdóttir – Friðrik Þorsteinsson – Guðjón Ottó Bjarnason – Guðmunda Jónsdóttir – Halldór Kr. Jónsson – Hartvig Ingólfur Ingólfsson – Hrönn Sigurgeirsdóttir – Ingibjörg Óskarsdóttir – Jón Halldór Grétarsson – Jón Þorgrímsson – Kim Mortensen – Kristín Einarsdóttir – Margrét Auðunsdóttir – Margrét Sigurðardóttir – Marteinn S. Sigurðsson – Ingunn Mjöll Sigurðardóttir – Ólafur Haraldsson – Oscar Bjarnason – Sara Elíasdóttir – Sigrún Sigurðardóttir – Sigurður Guðjón Jónsson -  Valgerður H. Rúnarsdóttir – Þorgils Garðar Gunnþórsson – Þorsteinn Narfason – Þórdís Björnsdóttir.

Fókus - félag áhugaljósmyndara var stofnað árið 1999. Félagið er opið öllum áhugamönnum um ljósmyndun, jafnt byrjendum sem lengra komnum. Markmið félagsins er að skapa vettvang fyrir félagsmenn til að sinna ljósmyndun. Til þess að framfylgja þessu markmiði er farið er í ljósmyndaferðir, haldnar ljósmyndasamkeppnir, ljósmyndasýningar og fræðsluerindi um ljósmyndun. Einnig eru reglulegir félagsfundir þar sem félagar hittast, skoða myndir, ræða saman um ljósmyndun og bera saman bækur sínar. Fókus heldur úti öflugri heimasíðu þar sem skoða má fjölda mynda og nálgast upplýsingar um félagið, sjá hér

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook