Gerðuberg

 

Bókakaffi - Nokkrar glóðvolgar

22.11.2011

Nokkrar glóðvolgarMiðvikudaginn 23. nóvember kl. 20 munu starfsmenn Borgarbókasafns, þau Björn Unnar Valsson, Ingvi Þór Kormáksson, Sunna Þórarinsdóttir, Úlfhildur Dagsdóttir og Þorbjörg Karlsdóttir kynna spennandi bækur af ólíku tagi úr bókaflóði haustsins. Áherslan verður lögð á skáldskap fyrir fullorðna, en ef til vill rata einhverjar ævisögur og barnabækur með í bunkann. Kynningin verður á léttum nótum og gestir hvattir til að taka þátt í spjallinu.

Í Bókakaffinu er spjallað um bækur af ýmsu tagi á léttum nótum á meðan gestir kaffihússins njóta veitinga í notalegu andrúmslofti. Markmiðið er að kynna áhugaverðar bókmenntir og ræða um þær á óformlegan hátt svo og að sýna fjölbreytileika íslenskra bókmennta og sagnamennsku.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook