Gerðuberg

 

Jólarósir Snuðru og Tuðru

24.11.2011

Sýning Möguleikhússins í Gerðubergi

Sunnudagana 27. nóvember og 4. desember kl. 14

 

Snuðra og TuðraJólin nálgast og mamma Snuðru og Tuðru ætlar að kenna börnunum í skólanum bútasaum, þannig að þau geti sjálf útbúið sitt eigið jólaskraut. Við kennsluna nýtur hún aðstoðar Theodóru í næsta húsi. En þeim gengur illa að koma sér að efninu því þær eru alltaf að rekast á eitthvað skondið sem leiðir talið að óþekktarormunum, Snuðru og Tuðru. Þá birtast þær ljóslifandi en eins og við er að búast gengur jólahaldið ekki snurðulaust fyrir sig þegar þær Snuðra og Tuðra eru annars vegar.

Leiksýningin Jólarósir Snuðru og Tuðru byggir á sögum Iðunnar Steinsdóttur. Hún var fyrst á dagskrá hjá Möguleikhúsinu fyrir jólin 2001 og var þá sýnd í þrjú ár við miklar vinsældir.

Leikstjóri upprunalegu sýningarinnar var Bjarni Ingvarsson, en umsjón með þessari enduruppsetningu hefur Pétur Eggerz. Búninga hannaði Katrín Þorvaldsdóttir og tónlist er eftir Vilhjálm Guðjónsson. Leikarar nýju uppfærslunnar eru Anna Brynja Baldursdóttir og Aino Freyja Järvelä.

Fyrir áhorfendur á aldrinum 3ja – 10 ára.
Aðgangseyrir: 2.000 krónur

Miðapantanir í síma 897 1813 og á moguleikhusid@moguleikhusid.is

Sjá einnig www.moguleikhusid.is

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook