Gerðuberg

 

Sýning í kaffihúsi og anddyri

24.11.2011

Nú stendur yfir sýningin Óbið í kaffihúsi Gerðubergs og í anddyri á efri hæð. Óbið samanstendur af tveimur einstaklingum sem rekja ættir sínar saman austur í Skaftafell í Öræfum. Sýningin endurspeglar fallbeygðar minningar sem taka lit í undirmeðvitundinni. Óbið er í eðli sínu abstrakt ferðalag minninga.

Bjarnheiður sýnir abstrakt verk máluð með akrýl og olíu en verk Óla Róberts eru einhverskonar blanda af abstrakt- og landslagsmálun máluð með akrýl. Sýningin er samstarfsverkefni þar sem listamennirnir unnu náið saman með því að hittast reglulega og skiptast á skoðunum um verkin á meðan þau voru í vinnslu. Eitt verk unnu þau sameiginlega þannig að þau skiptust á að mála, það verk er því mörg lög sem ýmist eru unnin af Bjarnheiði eða Óla Róbert.

Sýningin stendur til 15. janúar 2012 og er opin á opnungartíma kaffihússins, kl. 10-16 virka daga og kl. 13-16 um helgar.

Óli Róbert Hediddeche (f. 1974) lauk myndlistarnámi frá frá L´École des Beaux-Arts de Perpignan í Frakklandi árið 2000. Óli Róbert fluttist til Íslands árið 2010 eftir áralanga búsetu í Frakklandi þar sem hann starfaði að myndlist, rak myndlistargallerí, kenndi myndlist, tók þátt í samsýningum og hélt einkasýningar. 

Bjarnheiður Bjarnadóttir (f. 1961) hefur málað síðustu 6 ár. Upphafið að myndlistarsköpun hennar má rekja til námskeiða hjá Vogaakademíunni í Vogum á Vatnsleysuströnd. Síðustu ár hefur Bjarnheiður stundað nám í Myndlistaskóla Kópavogs og tekið þátt í samsýningum á þeirra vegum.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook