Gerðuberg

 

Horfinn heimur - Sýning í Boganum

02.12.2011

Magnús Halldórsson opnar sýninguna Horfinn heimur sunnudaginn 4. desember kl. 14. í Boganum Gerðubergi.

Magnús Halldórsson er fæddur í Reykjavík árið 1968. Hann ólst upp í Breiðholtinu og sleit þar barnsskónum með krökkunum í hverfinu í kúreka- og índíánaleik.

Eftir grunnskóla flutti Magnús til Keflavíkur og vann þar með föður sínum við pípulagnir. Einnig vann hann um tíma hjá Orkuveitunni sem þá hét Rafmagnsveita Reykjavíkur.

Magnús á stóran systkinahóp en þau eru átta talsins og úr þeim hópi er ein alsystir. 

Magnús byrjaði að mála 2005 og leitaði til barnæsku sinni að myndefni. Áhugi hans á indíánum byrjaði þegar hann var ungur drengur og á Magnús í dag glæsilegt safn fjölbreyttra muna sem tengjast indíánum og er hann stöðugt að bæta við safnið.

Magnús vinnur myndverk sín mest með akríl en mörg verka hans eru gerð með blandaðri tækni.

Sýningin stendur til 22. janúar 2012.

Hún er opin virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16.

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook