Pakkapökkun á handverkskaffi
05.12.2011
Þó innihald jólapakka skipti jafnan miklu máli er umbúnaðurinn ekki síður mikilvægur, enda sérlega gaman að færa gjöf sem er fallega innpökkuð. Miðvikudagskvöldið 7. desember kl. 20 mun Megan Herbert sýna nokkrar ólíkar leiðir til að gera jólapakkana enn meira spennandi.
Megan hefur tileinkað sér fjölbreytta pakkapökkun sem hún ætlar að deila með gestum á handverkskaffinu. Hún mun sýna nokkrar spennandi aðferðir til að skreyta pakka en jafnframt fá gestir sjálfir að reyna sig við einfaldari pappírsbrot sem nota má til pakkaskreytinga. Megan er teiknari, rithöfundur og vöruhönnuður. Hún hefur meðal annars hannað gjafapappír og kort en einnig mynsturspjöld fyrir kökuskreytingar. Nánari upplýsingar um Megan má finna á heimasíðu hennar www.meganherbert.com.
Handverkskaffi í Gerðubergi hóf göngu sína haustið 2008. Handverkskaffi er haldið fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði í kaffihúsinu í Gerðubergi. Tilgangurinn er gefa gestum kost á að kynnast spennandi handverki og þyggja sýnikennslu þegar það á við. Handverkskaffið er jafnan haldið fyrsta miðvikudagskvöld í mánuði kl. 20-22, aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.