Gerðuberg

 

Jóla-jazztónar

16.12.2011

Jóla-jazztónar í Gerðubergi 19. desember kl. 20
Tónleikarnir verða endurteknir 20. desember kl. 20
Aðgangseyrir: 1500 krónur.

 

JólajazztónleikarÞað verður jólastemning í salnum í Gerðubergi þegar þeir Valdimar söngvari, Leifur kontrabassaleikari og Kristján Tryggvi píanóleikari fylla húsið af jólajazztónum úr ýmsum áttum. Mælum með því að fólk mæti tímanlega því í kaffihúsinu verður boðið upp á ilmandi súkkulaði og kaffi ásamt rjómapönnukökum að hætti hússins fyrir tónleikana.

Valdimar Guðmundsson hefur verið talsvert áberandi í fjölmiðlum uppá síðkastið þar sem hann söng titillag myndarinnar Okkar Eigin Osló og kom um daginn fram í þættinum Hljómskálanum á RÚV þar sem hann tók lagið með Magnúsi Eiríkssyni. Valdimar 26 ára, fæddur og uppalinn í Keflavík. Hann  hóf nám í Tónlistarskóla Keflavíkur (síðar Reykjanesbæjar) í básúnuleik. Þaðan lá leiðin í Tónlistarskóla FÍH þar sem hann lærði á djassbásúnu undir handleiðslu Edward Frederiksen. Árið 2007 hóf hann tónsmíðanám við Listaháskóla Íslands og útskrifaðist þremur árum síðar. Valdimar stofnaði hljómsveit sína, Valdimar, árið 2009 ásmt Ásgeiri Aðalsteinssyni gítarleikara. Plata hljómsveitarinnar, Undraland, hefur vakið mikla athygli.

Kristján Tryggvi Martinsson lauk þverflautunámi frá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar árið 2006 og námi í djasspíanóleik frá Tónlistarskóla
FÍH vorið 2008, en stundar nú píanónám við djassdeild Tónlistarháskólans í Amsterdam. Kristján hefur samið tónlist og gefið út tvo hljómdiska með píanótríói sínu K tríó. K tríóið sigraði keppnina Young Nordic Jazz Comets árið 2008 og tók þátt í North Sea Jazz Festival í Hollandi árið 2009. Kristján hefur unnði með ýmsum tónlistarmönnum á Íslandi og í Evrópu, s.s. Tómasi R. Einarssyni, Sigríði Thorlacius, Tepokanum, Stórsveit Samúels J. Samúelssonar, Stórsveit Reykjavíkur, Reginfirru og K tríó.

Leifur Gunnarsson lauk burtfararprófi í kontrabassaleik frá Tónlistarskóla FÍH vorið 2009. Samhliða náminu spilaði hann með Tepokanum og Tríói harmonikuleikarans Vadims Fyodorov ásamt því að koma reglulega fram með hljómsveitum innan sígilda geirans t.d.
Sinfóníuhljómsveit áhugamanna, Ungfóníu og Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Leifur hefur síðan í ágúst 2010 verið búsettur í Kaupmannahöfn þar sem hann  litar listalífið og nemur við Ritmíska konservatoríið undir leiðsögn Jens Skou Olsen.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook