Kynning á dagskrá Gerðubergs
17.01.2012
Þriðjudaginn 16. janúar kl. 14 verða starfsmenn Gerðubergs með kynningu á vordagskráinni. Stiklað verður á stóru í viðburðum menningarmiðstöðvarinnar frá janúar til maí. Eftir kynninguna verður boðið upp á kaffi og pönnukökur, allir velkomnir.
Haldið verður áfram með röð skemmtilegra og fræðandi viðburða í kaffihúsinu á miðvikudagskvöldum en þar verða til skiptis Handverkskaffi, Heimspekikaffi, Stefnumótakaffi og Bókakaffi.
Á Handverkskaffinu verður fjallað um hekl, skrautskrift og lækningamátt kryddjurta. Gunnar Hersveinn leiðir Heimspekikaffið og tekur til umræðu ýmis hugtök og fær til sín góða gesti. Þórdís Elva Þorvaldsdóttir leikkona, leikskáld og rithöfundur verður gestur Gunnars 18. janúar n.k. og þá verður rætt um hugtökin gott og illt.
Stefnumótakaffið er nýtt í þessari viðburðaröð en þar munu gestir eiga stefnumót við fólk sem hefur ferðast víða og vill deila með okkur reynslu sinni og skemmtilegum sögum úr ferðum sínum. Gestir á vormisserinu eru þau Tómas R. Einarsson, tónlistarmaður, Einar Falur Ingólfsson ljósmyndari, Áslaug Rán Einarsdóttir svifvængsflugmaður og Alda Lóa Leifsdóttir hönnuður.
Bókakaffið verður á sínum stað en þar mun Ingvi Þ. Kormáksson fjalla um glæpasögur, höfundarnir Vilborg Dagbjartsdóttir og Guðmundur Andri Thorsson fjalla um verk sín og síðast en ekki síst mun Bjarni Guðmundsson á Hvanneyri fjalla um hvernig dráttarvélarnar breyttu sveitunum.
Gerðuberg mun ekki láta sitt eftir liggja í framboði á bókmenntatengdum viðburðum í Bókmenntaborginni Reykjavík. Í byrjun febrúar mun Páll Guðmundsson á Húsafelli opna myndlistarsýningu sem tileinkuð er Thor Vilhjálmssyni rithöfundi en þeir voru miklir vinir og samstarfsfélagar. Á sýningunni getur að líta hellu-, svell- og bergþrykk og verk úr steini. Thor skrifaði gjarnan ljóð út frá verkum Páls og á sýningunni verða meðal annars verk sem þeir unnu saman með þeim hætti og hafa ekki verið sýnd áður.
Þetta vilja börnin sjá!, hin árlega sýning á myndskreytingum úr barnabókum, verður á sínum stað og 3. bekkingum boðið upp á spennandi leiðsögn um sýninguna auk þess sem þau fá að skoða sýningu Páls á Húsafelli. Þau fara einnig í spurningakeppni og ratleik á bókasafninu.
Í apríl verður haldið Ritþing þar sem Hallgrímur Helgason mun sitja fyrir svörum. Stjórnandi þingsins er Þorgerður E. Sigurðardóttir og í hlutverki spyrla eru Páll Valsson og Alda Björk Valdimarsdóttir. Á sama tíma opnar Hallgrímur málverkasýningu undir heitinu Máluð málverk.
Arna Valsdóttir myndlistarkona opnar sýningu í apríl þar sem myndir og hljóð fylla rýmið. Sýninguna nefnir hún Staðreynd 5... brotabrot... oggulítill óður til kviksjárinnar. Arna vinnur verkið inn í rýmið, hlustar eftir eiginleikum þess og leitast við að fanga „reynd staðarins“.
Á Barnamenningarhátíðinni í apríl verður boðið upp á dagskrá í samstarfi við Möguleikhúsið sem frumsýnir leikgerð Péturs Eggerz úr sögunni Ástarsaga úr fjöllunum eftir Guðrúnu Helgadóttur. Eftir leikritið verðum börnunum boðið að taka þátt í tröllasmiðju og fara síðan í alls kyns tröllaleiki.
Heimsdagur barna verður á sínum stað á Vetrarhátíð í febrúar. Að þessu sinni er þema dagsins Magnað myrkur. Boðið verður upp á fjölbreyttar listasmiðjur þar sem viðfangsefnin eru byggð á töfraveröld íss og myrkurs. Snædrottningar, ískristallar, draugar og margt margt fleira.
Að venju verður Öskudagurinn haldinn hátíðlegur með veglegri skemmtun þar sem hljómsveit Eddu Borg og töframaðurinn John Tómasson halda uppi fjörinu. Allir eru velkomnir að fá aðstoð við að undirbúa öskudaginn með því að læra að búa til alvöru öskupoka og bolluvendi í föndursmiðju sem haldin verður helgina fyrir Öskudag.
Klassík í hádeginu verður á sínum stað undir styrkri stjórn Nínu Margrétar Grímsdóttur píanóleikara en boðið verður upp á tvenna tónleika, í febrúar með Hrólfi Sæmundssyni baritónsöngvara og í apríl með Sigurgeiri Agnarssyni sellóleikara. Boðið verður upp á fleiri tónleika en í byrjun febrúar mun Tríó Vadims Fyodorovs halda tónleika í tilefni af útgáfu disksins Swing for Sergey og í mars munu systurnar Signý og Þóra Sæmundsdætur halda tónleika þar sem fluttar verða þekktar íslenskar söngperlur.
Sýningarhaldið verður að venju fjölbreytt en auk stærri sýninga verður boðið upp á minni sýningar í kaffihúsinu og í Boganum. Þar verða sýndar klippimyndir, smyrnuð myndverk og skopteikningar auk hefðbundinna olíumálverka.
Menningarmiðstöðin Gerðuberg er lifandi hús þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Í húsinu er starfrækt bókasafn, félagsstarf og kaffihús auk þess sem leigðir eru út salir og fundarherbergi fyrir námskeið, ráðstefnur og fleira. Dagskrá Gerðubergs er að finna í sérstöku viðburðakorti sem gefið er út tvisvar og ári og er jafnframt aðgengileg á vefsíðunni www.gerduberg.is þar sem veittar eru nánari upplýsingar um viðburði og opnunartíma.
Nánari upplýsingar um einstaka dagskrárliði má nálgast undir liðnum viðburðarkort á heimasíðunni, sjá hér.
Verið velkomin í Gerðuberg – griðastað góðra hugmynda!