Gerðuberg

 

Klippt og skorið - sýning í kaffihúsinu

20.01.2012

Verið velkomin á opnun sýningarinnar Klippt og skorið sunnudaginn 22. janúar kl. 14 í kaffihúsi Gerðubergs. 
Á opnuninni verður Guðný með þuludagskrá þar sem hún fer með gamlar og óþekktar þulur.

Guðný er vel þekkt fyrir rekstur sinn á búðinni Græna Línan sem var til margra ára á Laugaveginum. Þar starfaði hún sem heilsuráðgjafi og seldi húð- og heilsuvörur. Brennandi áhugi Guðnýjar er þó enn til staðar þegar kemur að heilsu og sinnir hún enn ráðgjöf.

Guðný byrjaði fyrir nokkrum árum að klippa myndir úr tímaritum, raða þeim saman og skapa töfrandi myndheima. Hún fann að þetta listform sem opnaðist fyrir henni væri ákveðin heilun og hugleiðsla.
Guðný leggur mikinn metnað í úrklippurnar og að baki hverrar myndar liggur mikil vinna. Guðný raðar úrklippunum eftir litatónum og fær þannig innblástur. Þannig veljast úrklippurnar í verkið sem smátt og smátt skapa heildstætt verk.
Í hverri mynd er ákveðið þema en það er sameiginlegt með öllum verkum hennar að mannslíkamanum er ekki flíkað eins og gjarnan er gert í auglýsingum.
Vinnan við gerð myndanna er orðin stór þáttur í lífi Guðnýjar og segir hún að í hverju verki sé líf hennar og sál. 

Guðný var fengin til að sýna nokkrar myndir í Safnasafninu árið 2010 og í haust var sýning á verkum hennar í Kaffitári í Höfðatorgi.

Sýningin stendur til 11. apríl 2012 og er opin á opnunartíma kaffihússins, kl. 10-16 virka daga og kl. 13-16 um helgar.

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook