Gerðuberg

 

Vondir menn og vafasamar konur

23.01.2012

Ingvi Þór KormákssonFyrsta Bókakaffi ársins verður á dagskrá miðvikudagskvöldið 25. janúar kl. 20. Þar mun  Ingvi Þór Kormáksson fjalla um upphaf glæapasagnaritunar hérlendis og erlendis, fara yfir sögu þessarar bókmenntagreinar í stuttu máli og velta fyrir sér glæpasagnaskrifum á Íslandi upp á síðkastið. 

Ingvi Þór Kormáksson er bókasafnsfræðingur við Borgarbókasafn og nam einnig bókmenntir við H.Í. og háskólann í Kaupmannahöfn. Árið 2010 kom út eftir hann smásagnasafnið Raddir úr fjarlægð. Í þeirri bók má finna söguna Hliðarspor sem hlaut 1. verðlaun Gaddakylfunnar 2009. Hann þýddi einnig bókina Viskíbörnin sem út kom 1999. Ingvi hefur skrifað umsagnir um bækur, aðallega glæpasögur, fyrir Bókmenntavefinn (bokmenntir.is) frá 2003. Hann var tónlistargagnrýnandi hjá DV um tíu ára skeið, 1989-2000. Ingvi lék á hljómborð í ýmsum hljómsveitum til ársins 1995. Síðan þá hefur hann mest einbeitt sér að lagasmíðum. Árið 1993 hóf Ingvi Þór samstarf við breskan söngvara, laga- og textasmið, JJ Soul. Stofnuðu þeir JJ Soul Band sem hefur sent frá sér fjóra geisladiska. Þó nokkur lög Ingva þórs og hljómsveitarinnar hafa unnið til alþjóðlegra verðlauna og viðurkenninga. Alls hafa komið út tíu hljómdiskar og plötur með tónlist eftir Ingva Þór.

Dagskráin er samstarfsverkefni Gerðubergs og Borgarbókasafns Reykjavíkur.

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook