Gerðuberg

 

Þetta vilja börnin sjá!

26.01.2012

Sunnudaginn 29. janúar, kl.14, opnar hér í Gerðubergi sýningin Þetta vilja börnin sjá! Þar verða sýndar myndir úr barna- og unglingabókum sem gefnar voru út á árinu 2011. Sýning á myndskreytingum úr nýútkomnum barnabókum hefur verið árlegur viðburður í Gerðubergi síðan árið 2002.  

Í tengslum við sýninguna hefur besta myndskreyting ársins verið valin. Hlýtur hún verðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. Það eru Penninn á Íslandi og Félag íslenskra bókaútgefenda sem standa að verðlaununum í ár ásamt Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.

 

Dómnefnd skipa þau Aðalsteinn Ingólfsson, Bryndís Loftsdóttir og Kalman le Sage de Fontenay.

Verðlaunahafar fyrri ára:

2010   Karl Jóhann Jónsson fyrir bókina Sófus og svínið 
2009   Ragnheiður Gestsdóttir fyrir bókina Ef væri ég söngvari
2008   Kristín Ragna Gunnarsdóttir fyrir bókina Örlög guðanna sem skrifuð er af Ingunni Ásdísardóttur
2007   Sigrún Eldjárn fyrir bókina Gælur, fælur og þvælur
2006   Björk Bjarkadóttir fyrir bókina Amma fer í sumarfrí
2005   Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Gott kvöld
2004   Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Nei, sagði litla skrímslið
2003   Brian Pilkington fyrir bókina Mánasteinar í vasanum
2002   Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fyrir bókina Engill í Vesturbænum sem skrifuð er af Kristínu Steinsdóttur

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook