Gerðuberg

 

Dúllur og graff

26.01.2012

Á fyrsta handverkskaffi ársins mun Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir kynna ullargraff og grunnatriði í hekli. 

Tinna gaf nýverið út bókina Þóra - Heklbók og eftirfarandi textabrot má finna í inngangskaflanum Hannyrðahugvekja:

„Ekkert verður til úr engu og það var ekki markmið mitt að vera einungis með frumsamdar uppskriftir. Heklhefðin er rík af fallegum uppskriftum sem hafa verið skapaðar af konum í aldanna rás, og ég vil ólm miðla þeim áfram. Sumar eru því flökkuuppskriftir og aðrar eiga sig alveg sjálfar. Markmiðið var að hafa þær fjölbreyttar og von mín er sú að uppskriftirnar veki fyrst og fremst innblástur og áhuga á hekli. Öll verkin í bókinni eru hekluð af mér nema annað sé tekið fram.

Þegar ég hekla er ég öll í fiffinu. Smávægilegar villur í stykki gera sjaldnast nokkuð til. Enginn er fullkominn og þar fyrir utan engin ástæða til að handgerður hlutur líti út fyrir að vera búðarkeyptur. Maður þarf þó að geta séð muninn á því hvaða villur skipta ekki máli og hvað skyldi rekja upp og laga. Það lærist. Það að rekja upp er ekki neikvætt heldur eðlilegur hluti af því að skapa eitthvað og vilja gera það vel. Ég hef þó séð það á námskeiðunum hjá mér að sumir eru mjög nákvæmir og vilja hafa allt fullkomið. Það má líka.”

Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir lærði ung að halda á prjónum og heklunál – fór fljótt að hekla og prjóna af fingrum fram og breyta uppskriftum eftir eigin höfði. Henni er umhugað um íslenskt handverk og að fleiri læri listina. Tinna vill halda á lofti hannyrðaarfinum sem formæðurnar miðluðu til hennar, því er bók hennar Þóra- Heklbók, tileinkuð þeim og sérstaklega Þóru langömmu hennar sem kenndi henni tökin.

Tinna stundar einnig ullargraff, en þá er hekl, prjónles og útsaumur saumað upp út um borg og bý, á staura, tré, bekki eða hvað sem er. Þetta er nýtt form götulistar sem hefur nú verið iðkað út um allan heim sl. 5 ár. Það sem gerir ullargraffið frábrugðið annarri götulist eru kvenlægir eiginleikar þess, verandi bæði mjúkt og litríkt, og vegna þess að það veldur engum „skemmdum“ þegar það er sett upp.
Komið og fræðist um graffið og prófið sjálf! 

Handverkskaffi í Gerðubergi hóf göngu sína haustið 2008. Handverkskaffi er haldið fyrsta miðvikudagskvöld hvers mánaðar. Markmiðið með þessum kvöldum er að bjóða upp á notalega kvöldstund þar sem gestir geta fengið sér kaffi og með því, spjallað og kynnst spennandi handverki. Boðið er upp á stuttar skemmtilegar kynningar og stundum sýnikennslu, allt eftir viðfangsefni kvöldsins. Handverkskaffið hefst kl. 20 og stendur til kl. 22, aðgangur er ókeypis.

 

Handverkskaffi - dagskrá vorið 2012

Stefnumótakaffi - dagskrá vorið 2012

Heimspekikaffi - dagskrá vorið 2012

Bókakaffi - dagskrá vorið 2012

 

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook