Kristín Ragna Gunnarsdóttir hlaut Dimmalimm verðlaunin 2011
29.01.2012
Kristín Ragna Gunnarsdóttir hlaut Dimmalimm verðlaunin fyrir bestu myndskreytingu barnabókar árið 2011. Verðlaunin hlaut hún fyrir bókina Hávamál en þar enduryrkir Þórarinn Eldjárn hina fornu speki Óðins. Þau Þórarinn og Kristín Ragna hafa áður átt farsælt samstarf en saman unnu þau bókina Völuspá sem kom út árið 2005.
Aðalsteinn Ingólfsson talaði fyrir hönd dómnefndar og sagði m.a.:
Við þrjú sem erum í dómnefnd, sjálfur ég, Kalman le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður og Bryndís Loftsdóttir, bókafrömuður, höfum hingað til verið nokkuð samstíga í kröfugerð okkar til myndlýsinga í barnabókum. Við höfum lagt á það áherslu að myndirnar í bókunum væru ekki einskær endurspeglun textans, heldur ykju við hann og gerðu hann innihaldsríkari, væru jafnvel lífvænlegar utan bóka.
Þetta á sannarlega við um bók Kristínar Rögnu, sem nú hlýtur þessi verðlaun öðru sinni. Hún teflir saman hreinni teikningu, málverki og samklippi sem vísar í allar áttir, og þá sérstaklega í íslenskan samtíma. Þegar auðssöfnun er nefnd, sáldrar hún erlendri mynt vítt og breitt um arkir, annars staðar rekur hún hlykkjótta slóð nískupúka til sælueyjunnar Tortólu; erindi um matgræðgi fylgir umgjörð sem minnir á matgæðingaþætti sjónvarps og orðtakinu fræga „þjóð veit ef þrír vita“ fylgir mynd af púka sem nýsist fyrir á Fjésbókinni.
Allt er þetta gert af listfengi, smekkvísi og í takt við snilldarlega hantéringu Þórarins Eldjárn á hinum forna texta.
Eftirtaldir listamenn hafa áður hlotið Dimmalimm verðlaunin:
2010 Karl Jóhann Jónsson fyrir bókina Sófus og svínið
2009 Ragnheiður Gestsdóttir fyrir bókina Ef væri ég söngvari
2008 Kristín Ragna Gunnarsdóttir fyrir bókina Örlög guðanna sem skrifuð er af
Ingunni Ásdísardóttur
2007 Sigrún Eldjárn fyrir bókina Gælur, fælur og þvælur
2006 Björk Bjarkadóttir fyrir bókina Amma fer í sumarfrí
2005 Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Gott kvöld
2004 Áslaug Jónsdóttir fyrir bókina Nei, sagði litla skrímslið
2003 Brian Pilkington fyrir bókina Mánasteinar í vasanum
2002 Halla Sólveig Þorgeirsdóttir fyrir bókina Engill í Vesturbænum sem skrifuð er
af Kristínu Steinsdóttur
Á sýningunni Þetta vilja börnin sjá! í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi má sjá þær bækur sem kepptu til verðlaunanna að þessu sinni. Starfsfólk Gerðubergs og Borgarbókasafnsins mun bjóða 8 ára skólabörnum upp á skemmtilega dagskrá á sýningartímabilinu þar sem þau fá að skoða sýninguna Þetta vilja börnin sjá!, sýningu Páls Guðmundssonar á Húsafelli, Glitrar á hjarnið, og taka þátt í spennandi leikjum á bókasafninu.. Einnig er boðin leiðsögn um sýningarnar fyrir aðra aldurshópa í samráði við starfsfólk Gerðubergs.
Sýningin er farandsýning og hafa sýningar síðustu ára verið settar upp víða um landið.