Swing for Sergey á sunnudaginn kl. 16
03.02.2012

Flytjendur: Vadim Fyodorov á harmoniku, Gunnar Hilmarsson á gítar og Leifur Gunnarsson á kontrabassa.
Rússneski harmonikuleikarinn Vadim Fyodorov er Íslendingum að góðu kunnur enda var hann búsettur hér á landi í hartnær áratug. Árið 2007 stofnaði hann Tríó Vadims Fyodorovs til að leika franska musett- og jazztónlist. Tríóið hefur síðan haldið tónleika víða um land og gaf árið 2009 út hljómdiskinn Papillons Noirs sem hlaut góðar viðtökur.
Hljóðfæraleikararnir búa nú hver í sínu landinu, Vadim í Þýskalandi, Gunnar á Íslandi og Leifur í Danmörku. Þrátt fyrir það hefur tríóið nú hljóðritað nýjan disk, Swing for Sergey og heldur af því tilefni þrenna útgáfutónleika helgina 3.-5. febrúar. Föstudag og laugardag verða tónleikar á Café Rósenberg en sunnudaginn 5. febrúar kemur tríóið fram í Gerðubergi.
Nýi diskurinn dregur nafn sitt af titillaginu Swing for Sergey sem er tileinkað syni Vadims og innblásið af áhuga hans á gítarnum, sérstaklega gipsy gítarstílnum. Sergey er jafnframt einlægur aðdáandi Gunnars, gítarleikara tríósins.
Aðgangseyrir: 2.000 kr. - 1.500 kr. fyrir eldri borgara og námsmenn.