Sýningin Löngun
12.03.2012
Sýning Lilju Þorsteinsdóttur, Löngun, opnaði í Gerðubergi sunnudaginn 5. febrúar. Þar sýnir Lilja olíumálverk af ýmsum toga. Myndefnið sækir hún ýmist til hugans eða raunveruleikans. Verkin á sýningunni eru af blómum, landslagi og hestum.
Lilja Þorsteinsdóttir fæddist í Tungukoti í Skagafirði árið 1939. Hún bjó lengi á Tálknafirði en síðustu tvo áratugi í Hafnarfirði. Eftir að hún lét af störfum fyrir aldurs sakir hefur hún meiri tíma en áður til að sinna hugðarefni sínu; listmálun.
Lilja hefur lengi borið með sér sterka löngun til listsköpunar. Hún hefur alltaf heillast af litum enda veit hún sem satt er að litir hafa áhrif á okkur. Áhuginn á málaralist kviknaði hjá Lilju þegar hún átti leið framhjá búðarglugga á Laugaveginum fyrir rúmum áratug. Í glugga myndlistarvöruverslunar sá hún myndband af málarakennslu Bob Ross og skipti engum togum að hún sannfærðist á staðnum um að þetta vildi hún sjálf gera. Lilja hefur síðan sótt fjölda námskeiða í listmálun.
Sýningin stendur til 15. apríl og er opin virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-16. Nánari upplýsingar um sýninguna má nálgast hér.