Gerðuberg

 

Viðburðarík helgi framundan í Gerðubergi

03.02.2012

 

Kvæðamannafélagið Iðunn

Föstudaginn 3. febrúar, kl. 20.
Félagsfundur Kvæðamannafélagsins Iðunnar.
Allir velkomnir! 
Sjá nánar hér.

 

Glitrar á hjarnið

Laugardaginn 4. febrúar, kl. 14
Verið velkomin á opnun sýningar Páls á Húsafelli.  
Páll sýnir úrval verka sinna af hellu-, svell- og bergþrykki og verk úr steini.
Sýningin er tileinkuð minningu Thors Vilhjálmssonar. 
Sjá nánar hér.

 

Löngun

Sunnudaginn 5. febrúar, kl. 14.
Verið velkomin á opnun sýningar Lilju Þorsteinsdóttur. Lilja sýnir olíumálverk af ýmsum toga í Boganum. 
Sjá nánar hér.

 

Prumpuhóllinn

Sunnudaginn 5. febrúar, kl. 14.
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit eftir sögu Þorvalds Þorsteinssonar. 
Sjá nánar hér.
Miðaverð kr. 2.000.-
http://www.moguleikhusid.is/

 

Sveifla fyrir Sergey

Sunnudaginn 5. febrúar, kl. 16.
Tríó Vadims Fyodorovs - Útgáfutónleikar
Flytjendur: Gunnar Hilmarsson á gítar, Leifur Gunnarsson á kontrabassa og Vadim Fyodorov á harmóniku.
Aðgangseyrir: kr. 2.000.- 1.500.- fyrir námsmenn og eldri borgara. 
Sjá nánar hér.

 

Þetta vilja börnin sjá!

Í anddyri á neðri hæð stendur nú yfir sýning á myndskreytingum í nýútkomnum barnabókum. 
Sjá nánar hér .

 

Klippt og skorið

Guðný Guðmundsdóttir sýnir litríkar klippimyndir í kaffihúsi Gerðubergs. 
Sjá nánar hér .

 

Steinn - skæri - pappír og lyklar að himnaríki.

Sýning í Safnarahorni.
Safnarar: Axel Kaaber, Guðrún Guðmundsdóttir, Helga Hansdóttir, Herdís Helgadóttir, Petra Sveinsdóttir, Sigurdís Björk Baldursdóttir. Í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir. 
Sjá nánar hér .

 

 
Senda í tölvupósti Senda           Prenta Prenta           Senda á Facebook