Gerðuberg

 

Klassík í hádeginu á föstudag og sunnudag

28.02.2012

Föstudaginn 24. febrúar 2012 kl. 12.15 - 13.00
Tónleikarnir verða endurteknir sunnudaginn 26. febrúar 2012 kl. 13.15 - 14.00
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir

 

Ókeypis aðgangur

 

Hrólfur Sæmundsson, baritón og Nína Margrét Grímsdóttir, píanóleikari flytja sönglagaflokk Samuels Barber Mélodies Passagères og Old American Songs í útsetningum Aarons Copland. Tónlist tveggja af höfuðtónskáldum Ameríku heyrist sjaldan og enn sjaldnar á sömu tónleikunum.

Á fimmta starfsári Klassík í hádeginu er sem fyrr boðið upp á fjölbreytta og metnaðarfulla dagskrá sem miðast við að gefa almenningi aðgang að klassískri tónlist og flytjendum í hæsta gæðaflokki.  Efnisskrám er fylgt úr hlaði með kynningum á verkum og tónskáldum frá fjölmörgum tímabilum tónlistarsögunnar og vonast aðstandendur til að ná til sem flestra aldurshópa. Aðgangur er ókeypis og styrktur af Reykjavíkurborg. Gallerý Fiskur selur léttan hádegisverð fyrir eða eftir tónleikana fyrir einstaklinga og hópa.

Efnisskrá:

Mélodies Passagères óp. 27, nr. 1-5 (1950-´51)          Samuel Barber (1910-1981)
„Poèmes français”                                                         Rainer Maria Rilke (1875-1926)
1.      Puisque tout passe
2.      Un cygne
3.      Tombeau dans un parc
4.      Le clocher chante úr „Les Quatrains Valaisans“
5.      Départ

Old American Songs (úts. 1950-´55)                             Aaron Copland (1900-1990)
The Dodger
Long Time Ago
Simple Gifts
The Little Horses
At the River
Ching-a-ring Chaw
 

Sjá nánar um Hrólf Sæmundsson...

Sjá nánar um Nínu Margréti Grímsdóttur...

 



Senda í tölvupósti Senda Prenta Prenta undefinedSenda á Facebook