Fyrir augum þeirra yngstu
28.02.2012
Laugardaginn 3. mars kl. 10.30-13.30 verður haldin árleg barna- og unglingabókaráðstefna í Gerðubergi. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið bækur fyrir yngstu börnin. Aðgangur ókeypis - allir velkomnir. Í hléi gefst gestum kostur á að kaupa veitingar í kaffihúsinu.
Dagskrá:
Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir – bókmenntafræðingur, lektor við Háskóla Íslands
„Api, c, d, e, f, g, ettir kemur h, í, k, ellimenn og einnig p. Atla é kúðar standi hjá.“
Ásmundur K. Örnólfsson - leikskólakennari og aðstoðarleikskólastjóri á Ægisborg
Lestur leikskólamanns.
Bryndís Loftsdóttir - vörustjóri íslenskra bóka hjá Eymundsson
Sala íslenskra barnabóka – þróun síðustu ára og brýnustu verkefni.
Áslaug Jónsdóttir - myndlistamaður og rithöfundur
Velkominn í heiminn... - þankar um myndabókina, höfundinn og lesandann.
Fundarstjóri: Einar Ólafsson, bókavörður og skáld.
Nánari upplýsingar um fyrirlesara og innihald erinda má nálgast hér.
Barna- og unglingabókaráðstefnur hafa verið haldnar árlega í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi frá árinu 1998. Ráðstefnan er haldin í samvinnu við IBBY á Íslandi, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Rithöfundasamband Íslands - Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Félag fagfólks á skólasöfnum og Upplýsingu – Félag bókasafns- og upplýsingafræða.