Vilborg Dagbjartsdóttir spjallar við gesti
26.03.2012
um skáldskapinn, börnin og kvennabaráttuna í Bókakaffinu miðvikudaginn 28. mars kl. 20.
Vilborg Dagbjartsdóttir fæddist á Hjalla á Vestdalseyri við Seyðisfjörð 18. júlí 1930. Hún hefur skilað drjúgu verki á sinni ævi sem kennari, mikilsvirt ljóðskáld, rithöfundur og þýðandi. Hún hefur unnið að þáttagerð fyrir Ríkisútvarpið, samið og þýtt barnabækur. Hún varð fyrst manna til að fá verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og í maí árið 2000 fékk hún bókmenntaverðlaun IBBY fyrir störf sín í þágu barna og framlag sitt til barnamenningar. Hún hefur einnig hlotið bókmenntaverðlaun DV, að ógleymdu heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu.
Vilborg lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands árið 1952 og vorið 2000 lauk 45 ára farsælum kennsluferli við Austurbæjarskólann í Reykjavík.
Vilborg var virk í kvennabaráttu áttunda áratugarins og var einn af frumkvöðlum Rauðsokkahreyfingarinnar. Þau viðhorf hennar birtast greinilega í ljóðum hennar, sem jafnframt því að vera iðulega kímin og írónísk, bera alltaf alvarlega undirtóna. Fyrsta ljóðabók hennar var Laufið á trjánum sem kom út árið 1960 og var hún þá ein fárra kvenna sem skrifuðu atómljóð.
Í Bókakaffinu er spjallað um bækur af ýmsu tagi á léttum nótum á meðan gestir kaffihússins njóta veitinga í notalegu andrúmslofti. Markmiðið er að kynna áhugaverðar bókmenntir og ræða um þær á óformlegan hátt svo og að sýna fjölbreytileika íslenskra bókmennta og sagnamennsku.
Bókakaffið hóf göngu sína í Gerðubergi haustið 2011 og er hluti af dagskrárröð sem boðið er upp á miðvikudagskvöldum í kaffihúsinu. Gestir eru hvattir til að kíkja við og eiga notalega stund í kaffihúsinu og taka þátt í skemmtilegri og fræðandi dagskrá.
Viðburður í Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO
Handverkskaffi - dagskrá vorið 2012
Stefnumótakaffi - dagskrá vorið 2012
Heimspekikaffi - dagskrá vorið 2012
Bókakaffi - dagskrá vorið 2012