Gerðuberg

 

Trompettónleikar í Gerðubergi

02.04.2012

Miðvikudaginn 4. apríl, kl. 20

Aðgangseyrir 2000.- kr.

 

Flytjendur á Trompettónleikum í Gerðubergi eru Steinar Matthías Kristinsson trompetleikari og Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari. Þau leika verk eftir Balay, Corelli, Goedicke, Martini og Neruda.

Steinar Matthías Kristinsson hefur lokið mastersgráðu frá Boston Conservatory of Music. Kennari hans þar var Steven Emery. Steinar Matthías hefur leikið með fjölmörgum tónlistarhópum þar á meðal Sinfóniuhljómsveit Íslands og Blásarasveit Reykjavíkur. Hann starfar nú sem trompetleikari og tónlistarkennari við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Tónlistarskóla Garðabæjar.

Anna Málfríður Sigurðardóttir er Ísfirðingur að uppruna og hóf tónlistarnám við Tónlistarskóla Ísafjrðar en stundaði framhaldsnám við Guildhall School of Music & Drama, London. Frá 1974 hefur Anna starfað sem píanókennari og píanóleikari, bæði á Íslandi og erlendis, nú síðast m.a. við Tónskóla Sigursveins og Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Anna Málfríður hefur haldið fjölmarga tónleika, bæði hér heima og erlendis og komið fram sem einleikari, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveitinni í Trier.

  

 


 



Senda í tölvupósti Senda Prenta Prenta undefinedSenda á Facebook