Gerðuberg

 

Þetta vilja börnin sjá! á ferð um landið

09.08.2012

Sýningin Þetta vilja börnin sjá! er sýning á myndskreytingum úr íslenskum barna- og unglingabókum sem komu út á árinu 2011. Hún var í Gerðubergi frá lokum janúar og fram í aprílmánuð. Frá Reykjavík fór hún í Ketilhús í Listagilinu á Akureyri, í Bókasafn Árborgar og Bókasafn Akraness þar sem hún var til loka júlímánaðar. Næsti sýningarstaður er Sláturhúsið, Menningarhús á Egilsstöðum en þetta er annað árið sem sýningin verður sett upp þar.

Samhliða sýningunni voru verðlaun sem kennd eru við Dimmalimm, veitt fyrir bestu myndskreytinguna. Verðlaunin hlaut Kristín Ragna Gunnarsdóttir fyrir myndskreytingar í bókinni Hávamál.

Á sýningartímanum í Gerðubergi  var nemendum 3ja bekkjar í grunnskólum Reykjavíkur boðið í skipulagðar heimsóknir til að sjá sýninguna auk annars sem í boði var í húsinu á sama tíma. Um þúsund grunnskólanemendur komu í slíkar heimsóknir og nú fá börn annars staðar á landinu að njóta sýningarinnar því hún verður sett upp á 7 stöðum utan höfuðborgarsvæðisins.

Meira um Þetta vilja börnin sjá! hér...

 

Aðrir sýningarstaðir:

 

Ketilhús, Listagili Akureyri

Bókasafn Árborgar

Bókasafn Akraness

Sláturhúsið Menningarhús Egilsstöðum

Menningarmiðstöð Hornafjarðar

Sögusetrið Hvolsvelli

Safnahúsið á Húsavík



Senda í tölvupósti Senda Prenta Prenta undefinedSenda á Facebook