Gerðuberg

 

Krummadagskrá í Gerðubergi

10.05.2012

Til er fjöldinn allur af íslenskum alþýðulögum um krumma, sum þeirra eru mjög vel þekkt en önnur minna. Gerðuberg býður upp á skemmtilega og fræðandi dagskrá um krumma fyrir eldri börn leikskóla (fædd 2006 og 2007) og yngri börn grunnskóla (allir eru velkomnir en miðað er við árgangana 2003-2005). Dagskráin er í umsjón Báru Grímsdóttur og Chris Foster. Þau eru frábært tvíeyki þegar þjóðleg tónlist er annars vegar og því um einstaka upplifun að ræða fyrir börnin.

 

Krummadagskrá

Dagskráin byggir á fjölbreyttri upplifun. Börnin undirbúa heimsóknina með því að æfa lög og búa til krummagrímur sem þau taka með sér í Gerðuberg. Á staðnum taka þau þátt í dagskránni með söng og hlustun auk þess að horfa á myndir sem varpað er á vegg. Lengd dagskrárinnar er 40 mínútur og er hámarksfjöldi 60 börn.

Kennsluefni

Kennarar fá sent veglegt undirbúningsefni með söngtextum og þulum með gítargripum, ásamt sögum og upplýsingum um krumma. Heftinu fylgir geisladiskur með lögunum sungnum við gítarundirleik og einnig án söngs, þ.e. gítarundirleikur eingöngu. Einnig fylgir skapalón fyrir krummagrímur sem börnin geta búið til fyrir heimsóknina. Kennsluefnið nýtist bæði fyrir og eftir heimsóknina og stuðlar þannig að heildstæðri upplifun barnanna.

Bára Grímsdóttir ólst upp við söng og kveðskap, heyrði og lærði allt frá barnæsku kveðskap foreldra sinna, afa og ömmu á bænum Grímstungu í Vatnsdal. Bára er af mörgum talin vera einn allra besti túlkandi þjóðlegrar tónlistar hér á landi, en hún hefur sérstakan áhuga á rímnastemmum og kvæðalögum. Hún hefur fengist við flutning á margs konar þjóðlagatónlist bæði hér heima og erlendis. Sem tónskáld og útsetjari, hefur Bára nýtt sér uppsprettulindir íslenskra þjóðlaga til skapandi starfs en hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar sem tónskáld.

Chris Foster kynntist þjóðlögum í uppvexti sínum í Somerset í Suðvestur-Englandi. Flutningur hans einkennist af mikilli og persónulegri innlifun í tónlistina, sem oft leiðir til þess að áheyrendur verða beinir þátttakendur í því sem fram fer og flutt er. Chris hefur sett þjóðlagahefðina í nútímalegan búning með sérstæðum, frumlegum gítarundirleik og sannfærandi söngtúlkun. Hann er talinn einn besti listamaður síðari tíma á sínu sviði og í frestu röð merkra brautryðjenda í endurvakningu á breskri þjóðlagatónlist.
 

Kostnaður

Engin aðgangseyrir er á dagskrána sjálfa en skylt er að kaupa kennsluhefti með geisladisk, verð 4.500 kr.

 

Skráning:

Á thuridur.helga.jonasdottir@reykjavik.is eða í síma 575 7700.

 

Sýningartímar:

Mánudagur 7. maí kl. 9:30
Mánudagur 7. maí kl. 10:30

 

Þriðjudagur 8. maí kl. 9:30
Þriðjudagur 8. maí kl. 10:30

 

Miðvikudagur 9. maí kl. 9:30
Miðvikudagur 9. maí kl. 10:30

 

Fimmtudagur 10. maí kl. 9:30
Fimmtudagur 10. maí kl. 9:30

 

Mánudagur 14. maí kl. 9:30
Mánudagur 14. maí kl. 10:30

 

Þriðjudagur 15. maí kl. 9:30
Þriðjudagur 15. maí kl. 10:30

 

Miðvikudagur 16. maí kl. 9:30
Miðvikudagur 16. maí kl. 10:30

 

Mánudagur 21. maí kl. 9:30
Mánudagur 21. maí kl. 10:30

 

Þriðjudagur 22. maí kl. 9:30
Þriðjudagur 22. maí kl. 10:30 



Senda í tölvupósti Senda Prenta Prenta undefinedSenda á Facebook