Viðburðir í janúar 2012
Sýningar sem opnuðu árið 2011...
18. ágúst – 22. júní
Steinn – skæri - pappír og lyklar að himnaríki
Sýning í Safnarahorni.
Safnarar: Axel Kaaber, Guðrún Guðmundsdóttir, Helga Hansdóttir, Herdís Helgadóttir, Petra Sveinsdóttir, Sigurdís Björk Baldursdóttir.
Í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
12. nóvember – 8. janúar. Framlengd til 22. janúar...
Perlur
Magdalena Margrét Kjartansdóttir sýnir tré- og dúkristur og þrykk á japanskan pappír.
Myndefnið er skáldskapur í bland við veruleika; kvenlíkaminn frá barnæsku til hinstu stundar.
12. nóvember – 8. janúar. Framlengd til 22. janúar...
Málshættir í Fókus
Fókus félag áhugaljósmyndara sýnir ljósmyndir sem eiga það sameiginlegt að túlka íslenska málshætti.
23. nóvember – 15. janúar
Óbið
Bjarnheiður Bjarnadóttir og Óli Róbert Hediddeche sýna akrýl- og olíumálverk í kaffihúsi.
Sambræðingur tveggja listamanna, verk unnin sameiginlega og í sitt í hvoru lagi.
4. desember – 22. janúar
Horfinn heimur
Magnús Halldórsson sýnir akrílverk og verk unnin með blandaðri tækni í Boganum.
_________________________________
JANÚAR
4. og 6. janúar kl. 20
Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!
18. janúar kl. 20
Heimspekikaffi - Gott | Illt
Gunnar Hersveinn efnir til spennandi umræðu um hvaða fjórar siðareglur geti sameinað öll mannleg samfélög. Duga örfáar meginreglur til að breyta heiminum til betri vegar? Innlegg frá góðum gesti.
22. janúar – 15. apríl
Klippt og skorið
Guðný Guðmundsdóttir leyfir okkur að skyggnast inn í ólíka heima með litríkum klippimyndum sínum í kaffihúsi Gerðubergs.
22. janúar kl. 14
Langafi prakkari
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn.
Miðaverð kr. 2.000.-
www.moguleikhusid.is
25. janúar kl. 20
Bókakaffi – Vondir menn og vafasamar konur
Ingvi Þór Kormáksson fjallar um glæpasögur í tímans rás.
29. janúar kl. 14
Dimmalimm
Íslensku myndskreytiverðlaunin afhent fyrir bestu myndskreyttu barnabókina 2011.
Í samstarfi við Eymundsson, Félag íslenskra bókaútgefenda og Myndstef.
29. janúar – 1. apríl
Þetta vilja börnin sjá!
Sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum sem komu úr árið 2011.
Í samstarfi við Borgarbókasafnið í Reykjavík - Gerðubergssafn verður börnum í 3. bekkjum
grunnskóla boðin leiðsögn um sýninguna.
2012