Gerðuberg

 

Viðburðir 2012

Janúar Febrúar mars apríl maí júní
júlí ágúst september október nóvember desember

Viðburðir í mars 2012


Yfirstandandi sýningar...

 

18. ágúst 2011 – 22. júní 2012

Steinn – skæri - pappír og lyklar að himnaríki
Sýning í Safnarahorni.
Safnarar: Axel Kaaber, Guðrún Guðmundsdóttir, Helga Hansdóttir, Herdís Helgadóttir, Petra Sveinsdóttir, Sigurdís Björk Baldursdóttir.
Í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir

22. janúar – 15. apríl

Klippt og skorið
Guðný Guðmundsdóttir leyfir okkur að skyggnast inn í ólíka heima með litríkum klippimyndum sínum í kaffihúsi Gerðubergs.

29. janúar – 1. apríl

Þetta vilja börnin sjá!
Sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum sem komu úr árið 2011.

4. febrúar – 1. apríl

Glitrar á hjarnið
Páll á Húsafelli sýnir úrval verka sinna af hellu-, svell- og bergþrykki og verk úr steini.
Sýningin er tileinkuð minningu Thors Vilhjálmssonar.

5. febrúar – 15. apríl

Löngun
Lilja Þorsteinsdóttir sýnir olíumálverk af ýmsum toga í Boganum.

____________________________________

3. mars kl. 10.30 – 13.00

Fyrir augum hinna yngstu 
Árleg barna- og unglingabókaráðstefna. Að þessu sinni er fjallað um bækur fyrir yngstu börnin.

3. mars kl. 15

Íslenskar söngperlur
Flytjendur: Signý Sæmundsdóttir sópran og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari.
Aðgangseyrir: 2.000 kr.

7. mars kl. 20

Handverkskaffi – Gotnesk skrautritun
Þorvaldur Jónasson kynnir ýmis tilbrigði á gotneskri skrautritun. Farið verður í há- og lágstafi.

7. og 9. mars kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!

14. mars kl. 20

Stefnumótakaffi – Án vegabréfs
Einar Falur Ingólfsson segir frá fjarlægum slóðum og hvernig kynnin af þeim auka skilning á eigin heimalandi. Einar kemur við á Indlandi, í Suður-Ameríku og í Færeyjum.

21. mars kl. 20

Heimspekikaffi – Grín | Alvara
Gunnar Hersveinn bryddar upp á alvarlegri umræðu um grín. Hvers vegna er kímnigáfa svo mikils metin?
Marka þessar andstæður útlínur mannlífsins? Innlegg frá góðum gesti.

24. mars kl. 14

Glitrar á hjarnið
Í tilefni sýningar Páls á Húsafelli munu Steindór Andersen, Hilmar Örn Hilmarsson og Páll Guðmundsson
spila á steinhörpu og kveða. Fleiri góðir gestir koma fram.

28. mars kl. 20

Bókakaffi – Ég og skáldskapurinn
Vilborg Dagbjartsdóttir skáld segir frá skrifum sínum.

30. mars og 1. apríl

Klassík í hádeginu – Brahms & Massenet | Horfnir tímar og gömul gildi
Föstudag kl. 12.15 – 13.00 og sunnudag kl. 13.15-14.00.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Sigurgeir Agnarsson sellóleikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari.

 

2012