Gerðuberg

 

Viðburðir 2012

Janúar Febrúar mars apríl maí júní
júlí ágúst september október nóvember desember

Viðburðir í maí 2012


Yfirstandandi sýningar...

 

18. ágúst 2011 – 22. júní 2012

Steinn – skæri - pappír og lyklar að himnaríki
Sýning í Safnarahorni.
Safnarar: Axel Kaaber, Guðrún Guðmundsdóttir, Helga Hansdóttir, Herdís Helgadóttir, Petra Sveinsdóttir, Sigurdís Björk Baldursdóttir.
Í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir

14. apríl – 22. júní

Staðreynd 5 ... brotabrot ... oggolítill óður til kviksjárinnar
Arna Valsdóttir sýnir myndbands- og hljóðinnsetningu sem er fimmti hluti sýningarraðarinnar Staðreynd.
Verkið vinnur Arna inn í rýmið, hlustar eftir eiginleikum þess og leitast við að fanga e„reynd staðarins“.

14. apríl – 22. júní

Spaugspeglar
Sverrir Björnsson sýnir í kaffihúsi skopstúdíur á samfélag og mannlíf sem birst hafa í Aukablaðinu á undanförnum árum. Hvass penni Donalds hlífir engu, allt frá stjórnmálalífi til kynlífs.

18. apríl – 22. júní

Háð og spottar
Hermann B. Guðjónsson, alþýðulistamaður sýnir smyrnuð veggteppi í Boganum.
Meðal verkanna eru skopmyndir af þjóðþekktum persónum. Í samstarfi við List án landamæra.

21. apríl – 22. júní

Máluð málverk
Hallgrímur Helgason sýnir nokkur "máluð málverk" (eins og listamaðurinn orðar það).

_________________________________

 

Krummi krunkar úti - Syngjum og kveðum íslensk alþýðulög
Lærum að kveða og syngja íslensk alþýðulög. Skemmtileg og fræðandi dagskrá fyrir leikskólabörn.
Umsjón Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

2. maí kl. 20

Handverkskaffi – Lækningamáttur krydds
Margrét Sigurðardóttir fer yfir virkni helstu kryddjurta, hvernig nýta má þær gegn ýmsum kvillum 
og leiðbeinir um þurrkun þeirra.

2. og 4. maí kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!

9. maí kl. 20

Stefnumótakaffi - Garður Míreyjar
Alda Lóa Leifsdóttir fjallar um garð Míreyjar í Tógó í vestur-Afríku. Mírey er einstæð móðir og kaupsýslukona 
en jafnframt höfðingi samfélags þar sem margt minnir á gamla höfðingjaskipulagið.

 

2012