Gerðuberg

 

Viðburðir 2012

Janúar Febrúar mars apríl maí júní
júlí ágúst september október nóvember desember

Klassík í hádeginu - Barokksónötur


Föstudaginn 27. nóvember kl. 12:15-12:50 og
Sunnudaginn 29. nóvember 2010 kl. 13:15-13:50
Ókeypis aðgangur

 

Flytjendur:

Joaquín Páll Palomares, fiðla og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó

Efnisskrá:          

Sónötur eftir Johann Sebastian Bach BWV 1014; 1015; 1016

Joaquín Páll Palomares byrjaði að spila á fiðlu sex ára og lærði undir handleiðslu Unnar Pálsdóttur. Næstu fimm árin spilaði hann á mörgum tónleikum þar sem má nefna verk eins og fiðlukonserta Bruch og Mendelsohn, Rondo Capriccioso eftir Camille Saint-Saëns, og einleik með Sinfóníuhljómsveit á Spáni þar sem spiluð var Spænska sinfónían eftir Eduard Lalo. Eftir nokkurra ára hlé byrjaði hann haustið 2002 í Tónlistarskóla Kópavogs þar sem kennari hans var Margrét Kristjánsdóttir. Joaquín Páll útskrifaðist úr Tónlistarskóla Kópavogs vorið 2005. Haustið 2005 hóf hann nám við Listaháskóla Íslands og var kennari hans þar Auður Hafsteinsdóttir. Joaquín Páll hefur verið konsertmeistari í Ungfóníu, strengjasveitar Tónlistarskóla Kópavogs og Sinfóníu-hljómsveitar Tónlistarskólanna auk þess að hafa leikið með Orkesten Norden sumarið 2004. Haustið 2007 var hann einn af sigurvegurum keppninnar „Ungir einleikarar” og í framhaldi af því spilaði hann fiðlukonsert eftir Sibelius með Sinfóníuhljómsveit Íslands í janúar sl. Hann spilaði einnig sama konsert á tvennum tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Alicante á Spáni í febrúar sama ár. Páll stundar framhaldsnám við Hans Eisler-tónlistarháskólann í Berlín. Í umsögn prófdómara eftir glæsilega lokatónleika stendur m.a.: ” Páll endaði tónleika sína á Caprice eftir Saint Saens í útsetningu Ysaye. Páll lék þetta krefjandi verk stóglæsilega, þar sem allt var á sínum stað bæði tæknilega og stíllega. Hann er hrífandi í túlkun sinni og hefur mjög gott vald á hljóðfærinu”.

Nína Margrét Grímsdóttir hefur lokið doktorsprófi í píanóleik frá City University of New York. Hún hefur enn fremur lokið háskólaprófum í tónlist frá Englandi og Bandaríkjunum og einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1985. Hún hefur komið fram á Íslandi, Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Japan sem einleikari, með hljómsveitum og í kammertónlist. Þar má nefna Kammersveit Reykjavíkur, Royal Chamber Orchestra og Blásarakvintett Reykjavíkur. Ennfremur má nefna tónlistarflutning í sjónvarpi og útvarpi á Íslandi og erlendis, þátttöku í innlendum og alþjóðlegum tónlistarhátíðum, kennslu á tónlistarnámskeiðum auk birtra greina um tónlist og tónlistarmenntun og fyrirlestra. Í september 2008 kom hún fram á tónleikum í íslenska sendiráðinu í Berlín auk Ara Vilhjálmssonar, fiðluleikara og Sigurgeirs Agnarssonar, sellóleikara, og var fjallað afar lofsamlega um tónleikana í tímaritinu Crescendo das klassik magazin, m.a. að “í tónlistarflutningnum hefði sameinast virtúósatækni og djúpt innsæi í tilfinningar tónskáldanna.” Í febrúar sl. kom hún fram á einleikstónleikum í Róm í tónleikaröðinni Sagrestia del Borromini í Róm. Tónleikarnir voru haldnir í samstarfi við íslenska sendiráðið og styrktir af Menntasjóði Listaháskólans. Á þessu ári hefur hún enn fremur komið fram á tónleikum í Calgary og Edinborg sem hlutu mjög góða dóma í Lögberg-Heimskringlu og Glasgow Herald. Framundan eru tónleikar í Kína.

Nína Margrét hefur hljóðritað fjóra geisladiska sem allir hafa hlotið frábæra dóma í innlendum og erlendum fjölmiðlum. Þeir eru: Páll Ísólfsson: Complete Original Piano Music - BIS Records BIS 1139) sem var tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2001; F. Mendelssohn: Complete Works for Violin and Piano/Nomos Duo - Naxos (8.554725); Mozart & Mendelssohn: Piano works – SKREF (008) og Sveinbjörn Sveinbjörnsson: Piano Trios, Violin Sonata Naxos (8.570460) sem valinn var einn af tíu bestu klassísku geisladiskum ársins í Morgunblaðinu. Enn fremur hlaut diskurinn mjög lofsamlega dóma í Classical Music Guide Forums.Á disknum leika auk Nínu Margrétar þau Auður Hafsteinsdóttir, Sigurgeir Agnarsson og Sigurður Bjarki Gunnarsson. Nína Margrét starfar við Listaháskóla Íslands og Tónlistarskólann í Reykjavík og er einnig listrænn stjórnandi hádegistónleikanna “Klassík í hádeginu” í Gerðubergi.

Smelltu hér til að sjá veggspjald tónleikaraðarinnar Klassík í hádeginu 2010-2011...

2011