Gerðuberg

 

Viðburðir 2012

Janúar Febrúar mars apríl maí júní
júlí ágúst september október nóvember desember

Tóney í Gerðubergi


Sunnudaginn 4. október og
sunnudaginn 15. nóvember kl. 14-15

Hér er á ferðinni ný tónleikaröð ætluð tónlistarunnendum á öllum aldri, með þátttöku leikinna sem lærðra, ungra sem aldinna. Efnisskráin er fjölbreytt og flytjendur eru jafnt upprennandi tónlistarfólk sem og atvinnumenn. Lögð er áhersla á breiða þátttöku, söng og hljóðfæraslátt en einnig tengingu við dans og leiklist.

Tóney 1Tónleikarnir 4. október verða á alþýðlegum nótum, sungin verða lög við texta Jónasar Árnasonar og fleiri með þátttöku nemenda úr Fellaskóla í Breiðholti. Auk skólabarna verða meðal gesta dansarar frá Listdansskóla Íslands sem sýna kafla úr dansverkinu Move eftir Láru Stefánsdóttur en verkið var flutt á alþjóðlegri danshátíð á liðnu sumri. Ungir hljóðfæraleikarar og tónskáld flytja gömul og ný verk og hljómsveitin Agent Fresco, sem vakið hefur óskipta athygli að undanförnu fyrir framsækinn og kraftmikinn tónslitarflutning, kemur fram.

Á tónleikunum 15. nóvember verður boðið  upp á fjölbreytta dagskrá þar sem nemendur úr Sæmundarskóla koma fram, dansarar frá Listdansskóla Íslands sýna kafla úr dansverki við tónlist Tchaikovskys úr Hnotubrjótnum og ungir hljóðfæraleikarar og tónskáld koma fram og leika frumsamin tónverk. Þá koma Rússíbanarnir í heimsókn og taka nokkur lög. Hljómsveitin hefur haft hægt um sig undanfarin misseri en rýfur nú þögnina meðan harmónikusnillingurinn Tatu Kantoma dvelur hér í nokkra daga. Rússíbanar eru að leggja upp í tónleikaferð um Austurland en leika nokkur númer á Tóney í Gerðubergi áður en flugið er tekið austur.

Tóney í Gerðubergi er góður vettvangur fyrir fjölskylduna til að eiga ánægjulega stund saman, í skapandi og skemmtilegu umhverfi. Kannski situr eitthvað smálegt eftir í minningu unga fólksins, kannski kveikir eitthvað í unglingnum, kannski fá þeir eldri frjóa hugmynd og kannski lifnar í gömlum glæðum þeirra elstu. 

Tónleikarnir eru um klukkustundar langir, án hlés og hefjast kl. 14.00.  Að tónleikum loknum er kaffistofan í Gerðubergi opin gestum.

Nánar upplýsingar um viðburðina veitir Guðni Franzson í síma 862 4913 / gudni@toney.is

 

Um TóneyTóney 2

Á Tóney er unnið að tónlist á breiðum grunni í formi námskeiða, fyrirlestra, hóp- og einkakennslu. Áhersla er lögð á söng og hljóðfæraleik, almenna tónlistarþjálfun, tækni- og fræðipælingar, tónsmiðju og margvísleg verkefni tengdum tónlist. Klassík-, jazz-, heims- og tilraunatónlist eiga samastað á Tóney en opið er fyrir þátttakendur á öllum aldri.

Sérstök rækt er lögð við tækni og fræði tónlistar. Boðið er uppá námskeið í mikilvægum tölvuforritum, færustu leiðbeinendur hér heima og erlendis, fræðimenn, tónskáld og tæknimenn, halda námskeið. 

Á Tóney eru þróuð námskeið sem fara fram í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum, námskeið sem koma inn í almenna tónmenntakennslu hvers skóla en unnin af fagfólki. Tóney kemur í vetur m.a. að tónlistarverkefnum í nokkrum grunnskólum Reykjavíkur, s.s. Sæmundarskóla, Fellaskóla, Langholtsskóla, Hvassaleitisskóla, o. fl.

Tóney vinnur í nánu samstarfi við tónlistarskólana á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni við að auka möguleika í tónsköpun, hljóðfæraleik og tónlist almennt.  Farkennsla er verkefni þar sem fagfólk frá Tóney heimsækir skóla á landsbyggðinni og aðstoðar við kennslu og uppbyggingu námsefnis.

Bækistöðvar Tóneyjar eru í Síðumúla 8, 108 Rv en ábyrgðarmaður er Guðni Franzson.

Allar nánari upplýsingar á www.toney.is

 

2009