Gerðuberg

 

Viðburðir 2012

Janúar Febrúar mars apríl maí júní
júlí ágúst september október nóvember desember

Viðburðadagatal 2012


Sýningar sem opnuðu árið 2011...

 

18. ágúst – 22. júní

Steinn – skæri - pappír og lyklar að himnaríki
Sýning í Safnarahorni.
Safnarar: Axel Kaaber, Guðrún Guðmundsdóttir, Helga Hansdóttir, Herdís Helgadóttir, Petra Sveinsdóttir, Sigurdís Björk Baldursdóttir.
Í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands.
Sýningarstjóri: Þórunn Elísabet Sveinsdóttir

12. nóvember – 8. janúar. Framlengd til 22. janúar...

Perlur
Magdalena Margrét Kjartansdóttir sýnir tré- og dúkristur og þrykk á japanskan pappír. 
Myndefnið er skáldskapur í bland við veruleika; kvenlíkaminn frá barnæsku til hinstu stundar.

12. nóvember – 8. janúar. Framlengd til 22. janúar...

Málshættir í Fókus
Fókus félag áhugaljósmyndara sýnir ljósmyndir sem eiga það sameiginlegt að túlka íslenska málshætti.

23. nóvember – 15. janúar

Óbið
Bjarnheiður Bjarnadóttir og Óli Róbert Hediddeche sýna akrýl- og olíumálverk í kaffihúsi.
Sambræðingur tveggja listamanna, verk unnin sameiginlega og í sitt í hvoru lagi.

4. desember – 22. janúar

Horfinn heimur
Magnús Halldórsson sýnir akrílverk og verk unnin með blandaðri tækni í Boganum.

_________________________________

JANÚAR

 

4. og 6. janúar kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!

18. janúar kl. 20

Heimspekikaffi  - Gott | Illt
Gunnar Hersveinn efnir til spennandi umræðu um hvaða fjórar siðareglur geti sameinað öll mannleg samfélög. Duga örfáar meginreglur til að breyta heiminum til betri vegar? Innlegg frá góðum gesti.

22. janúar – 11. apríl

Klippt og skorið
Guðný Guðmundsdóttir leyfir okkur að skyggnast inn í ólíka heima með litríkum klippimyndum sínum í kaffihúsi Gerðubergs.

22. janúar kl. 14

Langafi prakkari
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn.
Miðaverð kr. 2.000.-
http://www.moguleikhusid.is/

25. janúar kl. 20

Bókakaffi – Vondir menn og vafasamar konur
Ingvi Þór Kormáksson fjallar um glæpasögur í tímans rás.

29. janúar kl. 14

Dimmalimm
Íslensku myndskreytiverðlaunin afhent fyrir bestu myndskreyttu barnabókina 2011.
Í samstarfi við Pennann á Íslandi ehf og Félag íslenskra bókaútgefenda.

29. janúar – 1. apríl

Þetta vilja börnin sjá!
Sýning á myndskreytingum úr íslenskum barnabókum sem komu úr árið 2011.
Í samstarfi við Borgarbókasafnið í Reykjavík - Gerðubergssafn verður börnum í 3. bekkjum
grunnskóla boðin leiðsögn um sýninguna. Sjá nánar hér.

 

FEBRÚAR

 

1. febrúar kl. 20

Handverkskaffi – Dúllur og graff 
Tinna Þórudóttir Þorvaldsdóttir kynnir ullargraff og grunnatriði í hekli.

1. og 3. febrúar kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!

4. febrúar – 1. apríl

Glitrar á hjarnið
Páll á Húsafelli sýnir úrval verka sinna af hellu-, svell- og bergþrykki og verk úr steini.
Sýningin er tileinkuð minningu Thors Vilhjálmssonar.

5. febrúar kl. 16

Sveifla fyrir Sergey
Tríó Vadims Fyodorovs - Útgáfutónleikar
Flytjendur: Gunnar Hilmarsson á gítar, Leifur Gunnarsson á kontrabassa og Vadim Fyodorov á harmoniku.
Aðgangseyrir: 2.000 krónur

5. febrúar – 15. apríl

Löngun
Lilja Þorsteinsdóttir sýnir olíumálverk af ýmsum toga í Boganum.

5. febrúar kl. 14

Prumpuhóllinn
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit eftir sögu Þorvalds Þorsteinssonar.
Miðaverð kr. 2.000.-
http://www.moguleikhusid.is/

8. febrúar kl. 20

Stefnumótakaffi - Kúbanskir tónar
Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari spjallar um kúbanska tónlistarhefð og ferðir sínar til Havana.
Frásögn sína styður hann tóndæmum með aðstoð Ómars Guðjónssonar gítarleikara.

11. febrúar kl. 13-17

Heimsdagur barna – Magnað myrkur
Listasmiðjur þar sem boðið er upp á viðfangsefni úr töfraveröld íss og myrkurs.
Snædrottningar, ískristallar, draugar og margt, margt fleira!

15. febrúar kl. 20

Heimspekikaffi – Ást | Fæð
Gunnar Hersveinn leiðir lifandi umræður um andstæðuna ást og fæð.
Hvernig er fullnægjandi ást og hvernig má forðast að leggja fæð á aðra? Innlegg frá góðum gesti.

19. febrúar kl. 14-16

Kanntu að búa til öskupoka og bolluvönd?
Komdu í föndursmiðju með mömmu og pabba eða afa og ömmu. Allt efni á staðnum.
Í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands.

22. febrúar kl. 14

Öskudagsgleði fyrir alla káta krakka!
Edda Borg og hljómsveit leika fyrir dansi og John Tómasson sýnir fjörugum og furðubúnum börnum töfrabrögð.

22. febrúar kl. 20

Bókakaffi  - Valsarnir á Valeyri
Guðmundur Andri Thorsson spjallar um verk sín með áherslu á það nýjasta, sagnasafnið Valeyrarvalsinn.

24. og 26. febrúar 

Klassík í hádeginu – Barber & Copland | Ómur Ameríku
Föstudag kl. 12.15 – 13.00 og sunnudag kl. 13.15-14.00.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Hrólfur Sæmundsson baritón og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari.

25. febrúar kl. 14

Langafi prakkari
Möguleikhúsið sýnir barnaleikrit byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn.
Miðaverð kr. 2.000.-
http://www.moguleikhusid.is/

 

MARS

 

3. mars kl. 10.30 – 13.00

Fyrir augum hinna yngstu 
Árleg barna- og unglingabókaráðstefna. Að þessu sinni er fjallað um bækur fyrir yngstu börnin.

3. mars kl. 15

Íslenskar söngperlur
Flytjendur: Signý Sæmundsdóttir sópran og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari.
Aðgangseyrir: 2.000 kr.

7. mars kl. 20

Handverkskaffi – Gotnesk skrautritun
Þorvaldur Jónasson kynnir ýmis tilbrigði á gotneskri skrautritun. Farið verður í há- og lágstafi.

7. og 9. mars kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!

14. mars kl. 20

Stefnumótakaffi - Án vegabréfs
Einar Falur Ingólfsson segir frá fjarlægum slóðum og hvernig kynnin af þeim auka skilning á eigin heimalandi. Einar kemur við á Indlandi, í Suður-Ameríku og í Færeyjum.

21. mars kl. 20

Heimspekikaffi - Grín | Alvara
Gunnar Hersveinn bryddar upp á alvarlegri umræðu um grín. Hvers vegna er kímnigáfa svo mikils metin?
Marka þessar andstæður útlínur mannlífsins? Innlegg frá góðum gesti.

24. mars kl. 14

Glitrar á hjarnið
Í tilefni sýningar Páls á Húsafelli munu Steindór Andersen, Hilmar Örn Hilmarsson og Páll Guðmundsson
spila á steinhörpu og kveða. Fleiri góðir gestir koma fram.

28. mars kl. 20

Bókakaffi – Ég og skáldskapurinn
Vilborg Dagbjartsdóttir skáld segir frá skrifum sínum.

30. mars og 1. apríl

Klassík í hádeginu – Brahms & Massenet | Horfnir tímar og gömul gildi
Föstudag kl. 12.15 – 13.00 og sunnudag kl. 13.15-14.00.
Listrænn stjórnandi: Nína Margrét Grímsdóttir.
Flytjendur: Sigurgeir Agnarsson sellóleikari og Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari.

 

APRÍL

 

11. apríl kl. 20

Stefnumótakaffi – Byr undir báða vængi
Áslaug Rán Einarsdóttir segir frá reynslu sinni af ferðalögum um heiminn á svifvæng.
Hún hefur svifið um loftin blá í ótal löndum í nafni UN WOMEN undir yfirskriftinni "The Flying Effect".

11. og 13. apríl kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!

14. apríl – 22. júní

Staðreynd 5 ... brotabrot ... oggolítill óður til kviksjárinnar
Arna Valsdóttir sýnir myndbands- og hljóðinnsetningu sem er hluti af sýningaröðinni Staðreynd.
Verkið vinnur Arna inn í rýmið, hlustar eftir eiginleikum þess og leitast við að fanga „reynd staðarins“.

14. apríl – 22. júní

Spaugspeglar
Sverrir Björnsson sýnir í kaffihúsi skopstúdíur á samfélag og mannlíf sem birst hafa í Aukablaðinu á undanförnum árum. Hvass penni Donalds hlífir engu, allt frá stjórnmálalífi til kynlífs.

18. apríl – 22. júní

Háð og spottar
Hermann B. Guðjónsson alþýðulistamaður sýnir smyrnuð veggteppi í Boganum.
Meðal verkanna eru skopmyndir af þjóðþekktum persónum. Í samstarfi við List án landamæra.

21. apríl kl. 13.30 – 16

Ritþing – 101 Hallgrímur
Hallgrímur Helgason situr fyrir svörum á Ritþingi.
Stjórnandi þings: Þorgerður E. Sigurðardóttir. Spyrlar: Páll Valsson og Alda Björk Valdimarsdóttir.

21. apríl – 22. júní

Máluð málverk
Hallgrímur Helgason sýnir nokkur "máluð málverk" (eins og listamaðurinn orðar það).

22. apríl kl. 14

Ástarsaga úr fjöllunum
Leiksýning eftir sögu Guðrúnar Helgadóttur í leikgerð Péturs Eggertz
ásamt tröllasmiðju og leikjum fyrir káta krakka.
Umsjón Möguleikhúsið. Á dagskrá Barnamenningarhátíðar í Reykjavík

25. apríl kl. 20

Bókakaffi – "Þetta er nú dynur hins nýja tíma, Þuríður mín"
Bjarni Guðmundsson Hvanneyri segir frá því þegar dráttarvélarnar Ferguson og Farmall breyttu sveitunum.

 

MAÍ

 

maí

Krummi krunkar úti - Syngjum og kveðum íslensk alþýðulög
Lærum að kveða og syngja íslensk alþýðulög. Skemmtileg og fræðandi dagskrá fyrir leikskólabörn. 
Umsjón Bára Grímsdóttir og Chris Foster.

2. maí kl. 20

Handverkskaffi – Lækningamáttur krydds
Margrét Sigurðardóttir fer yfir virkni helstu kryddjurta, hvernig nýta má þær gegn ýmsum kvillum 
og leiðbeinir um þurrkun þeirra.

2. og 4. maí kl. 20

Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðalagaæfing og félagsfundur
Allir velkomnir!

9. maí kl. 20

Stefnumótakaffi – Garður Míreyjar
Alda Lóa Leifsdóttir fjallar um garð Míreyjar í Tógó í vestur-Afríku. Mírey er einstæð móðir og kaupsýslukona  
en jafnframt höfðingi samfélags þar sem margt minnir á gamla höfðingjaskipulagið.

 

 

2012