Viðburðadagatal 2000
JANÚAR
15. janúar - 6. febrúar
Þetta vil ég sjá. Vigdís Finnbogadóttir velur verk íslenskra myndlistarmanna.
21. janúar
Guðmunda S. Gunnarsdóttir sýnir í Félagsstarfi Gerðubergs.
29. janúar
Reykjavík menningarborg Evrópu árið 2000. Kynning á viðburðum Gerðubergs á menningarári.
FEBRÚAR
6. febrúar
Ljóðatónleikar: Íslenska einsöngslagið - Sveinbjörn Sveinbjörnsson.
Flytjendur: Signý Sæmundsdóttir, Bergþór Pálsson og Jónas Ingimundarson, píanóleikari.
12. febrúar - 19. apríl
Sjónþing. Anna Líndal - Taumhald lífsins.
12. - 19. febrúar
Sögusýning Félags heyrnarlausra í tilefni af 40 ára afmæli félagsins.
Sýningin spannar síðustu 140 árin í sögu heyrnarlausra á Íslandi, eða frá því að séra Páll Pálsson setti á fót fyrsta skólann fyrir heyrnarlausa árið 1867, til dagsins í dag.
MARS
11. mars
Ritþing Þórarins Eldjárns - Róttæk formfræði
25. mars
Goðsögur, galdrar og fantasía í barna- og unglingabókmenntum
Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir
APRÍL
7. apríl - 21. maí
Myndlistarsýning Þórs Magnúsar Kapor í Félagsstarfi Gerðubergs.
30. apríl
Dagur hinna djúpu strengja.
Tónlistarhátíð í Gerðubergi í samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna, þar sem hljóðfærin selló, kontrabassi og gamba í aðalhlutverki.
Leikin verða sjaldgæf einleiksverk fyrir kontrabassa eftir Koussevitzky, Paganini Kutz o.fl. Spilað verður úr sellósvítum Bachs á fimm strengja barrokkselló. Víóla da Gamba hljómar einnig þennan dag og verk fyrir selló eftir Ecclés, Rachmaninoff, Debussy, Chopin og Beethoven, ásamt fallegum og fjörugum samspilsatriðum.
Einleiksverk leika: Bryndís Halla Gylfadóttir, Gunnar Björnsson, Gunnar Kvaran, Inga Rós Ingólfsdóttir, Ólöf Sesselja Óskarsdóttir, Sigurður Halldórsson, Dean Ferrell, Hávarður Tryggvason og Páll Hannesson.
27. apríl, 8., 11., 15., 18., 22. og 25. maí
Fyrirlestrar um sköpun og velgengni
Leiðbeinandi: Jóhann Breiðfjörð.
MAÍ
6. maí - 9. júní
Nýsköpunarkeppni grunnskólanema.
Sýning á teikningum og líkönum úr keppninni sem haldin er í níunda sinn. Hugmyndaflugi barnanna eru engin takmörk sett. Á sýningunni er að finna hluti eins og: hrotubrjót, öndunargleraugu, pottapískara, svalahandfang, skólatösku með lappir, hundaregnföt, pottamálara og tvíbursta.
28. maí - 5. júní
Menningardagar í Félagsstarfi Gerðubergs
Dagskráin hefst með þátttöku í fjölskylduhátíð í Elliðadal. Þá verður farið í skrúðgöngu, haldin guðsþjónusta, hljóðfæraleikur, dans o.fl. Opnuð verður handavinnusýning, tölvuklúbburinn kynntur o.fl.
JÚNÍ
Samsýning Myndlistarklúbbs Félagsstarfs Gerðubergs.
Súsanna Kristjánsdóttir, Bryndís Magnúsdóttir, Eðvaldína M. Kristjánsdóttir,
Guðbjörg Guðbrandsdóttir, Lillý Erla Guðjónsdóttir, Guðný Helgadóttir.
22. júní
Hana Jakrlova-Kirkpatrick - Ljósmyndasýning
Hana er tékkneskur ljósmyndari. Hún sýnir myndir sem teknar eru í menningarborgunum níu; Reykjavík, Bergen, Helsinki, Brussel, Krakow, Prag, Avignon, Bologna og Santiago de Compostela.
JÚNÍ - ÁGÚST
Listsmiðjur Gerðubergs, Gagn og gaman.
Myndsmiðja - Leiksmiðja - Tónsmiðja. Þriggja vikna smiðjur.
Leiðbeinendur: Dofri Hermannson, leikari, Hómfríður Arnardóttir, barnaheimspekingur, Sigríður Ólafsdóttir, myndlistarmaður, Ásdís Arnardóttir, myndlistarmaður, Agnar Jón Egilsson leikari, Arna G. Valsdóttir, myndlistarmaður, Mist Þorkelsdóttir tónskáld.
SEPTEMBER
2. - 30. september
Fantasi Design - samnorræn sýning á hönnun og uppfinningum barna og unglinga
Norræn börn og unglingar gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn.
15. september - 29. október
Myndlistarsýning í Félagsstarfi Gerðubergs. Bjarni Þór Þorvaldsson.
OKTÓBER
4. - 22. október
Menningarhátíð í tilefni 25 ára afmælis Fjölbrautaskólans í Breiðholti
4. október - Myndlistarsýning
5. október - Blúskvöld
6. október - Menningarkvöld
28. október - 19. nóvember
Þetta vil ég sjá! Sigrún Hjálmtýsdóttir velur verk eftir íslenska myndlistarmenn
NÓVEMBER
3. nóvember
Hrefna Sigurðardóttir sýnir í Félagsstarfi Gerðubergs
4. nóvember
Ritþing Einars Más Guðmundssonar
11. nóvember
Opera Omnia sýnir POY - Tónlistardraumur fyrir þriggja ára og eldri.
Opera Omnia er norskur leikhópur sem fengist hefur við mismunandi tónleikhússýningar síðustu 10 ár.
11. nóvember
"Ekki eingöngu Chopin" - Pólsk tónlist á 19. öld.
Tónleikar í samvinnu við Vináttufélag Íslendinga og Pólverja.
Flytjendur: Alina Dubik, Szymon Kuran og Jacek Tosik-Warszawiak
25. nóvember
Barnadagur í Gerðubergi - Viltu lesa fyrir mig?
Bókelskum börnum og barngóðum fullorðnum er boðið í Gerðuberg til að hlýða á barnabókahöfunda lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum.
25. nóvember - 16. desember
Marbendlar og sækýr - Sýning á myndskreytingum
Álfheiður Ólafsdóttir sýnir myndskreytingar úr samnefndri bók sinni.