Kvæðamannafélagið Iðunn
Kvæðamannafélagið Iðunn var stofnað 15. september 1929 á fundi sem haldinn var í Góðtemplarahúsinu, sem stóð við norðurbakka Tjarnarinnar, nokkru vestan við Iðnó. Félagið hefur starfað óslitið öll þessi ár og er nú orðið meðal elstu félagasamtaka í Reykjavík. Frá upphafi hefur helsta markmið félagsstarfsins verið að viðhalda, varðveita og miðla til komandi kynslóða rímnakveðskap og vísnagerð, þeirri alþýðulist sem um langan aldur hefur verið einn merkasti þáttur íslenskrar þjóðmenningar. Til að ná þessum markmiðum hefur frá fyrstu tíð verið unnið að söfnunar- og varðveislustarfi innan félagsins. Hljóðrituð rímnalög, kvæðalög og stemmur eru varðveitt í hljóðritasafni félagsins og vísum og kvæðum hefur verið safnað í vísnabækur Iðunnar. Í safni félagsins eru þess vegna varðveitt margvísleg gögn, fundargerðabækur allt frá upphafi starfsins, félagaskrár, hljóðrit af ýmsu tagi, handrit og prentaðar bækur, einkum rímna-, ljóða- og vísnabækur. Hluta af safninu verður í vetur komið fyrir í setustofu á neðri hæð Gerðubergs þar sem það verður aðgengilegt félagsmönnum og öðru áhugafólki.
Yfir vetrartímann, frá október og fram í maí, eru svokallaðar kvæðalagaæfingar haldnar fyrsta miðvikudagskvöld hvers mánaðar. Þar fer fram kennsla kveðskapar og miðlað er fróðleik um bragfræði rímna. Jafnframt er á æfingum farið yfir þau kvæðalög sem síðan eru kveðin í samkveðskap á næsta félagsfundi en félagsfundir eru jafnan haldnir á föstudagskvöldi næst á eftir kvæðalagaæfingunum. Þetta eru opnir fundir, haldnir til fróðleiks og skemmtunar fyrir félagsmenn og gesti þeirra. Á fundum koma fram kvæðamenn og hagyrðingar. Þá er flutt margvíslegt efni í bundnu máli og óbundnu, kveðnar rímur, ljóð og lausavísur, flutt kvæði og lesið upp efni sem oftast er tengt þjóðlegum fróðleik. Um miðbik fundar fer fram samkveðskapur félagsmanna og taka þá allir viðstaddir kvæðamenn lagið saman í einum hópi og kveða nokkrar stemmur. Því næst er kaffihlé og gefst þá fundarmönnum tækifæri til að rabba saman um áhugamál eða landsins gagn og nauðsynjar. Auk þessa fasta farvegs fyrir félagsstarfið má nefna ýmsa árvissa viðburði, árshátíðir eða þorrablót að vetrinum og skemmtiferðir að sumrinu.
Fjöldi félagsmanna í Iðunni er nú nokkuð á þriðja hundraðið. Til félagsfunda mæta oftast um 40 til 60 manns og á kvæðalagaæfingar koma oft um 15 til 20 manns, stundum fleiri, stundum færri.
Fundir og kvæðalagaæfingar hafa frá árinu 2007 verið í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í Breiðholti, samkvæmt samstarfssamningi milli Kvæðamannafélagsins Iðunnar og Gerðubergs. Má segja að það sé vel við hæfi að eitt hið elsta menningarfélag sem starfandi er í Reykjavík fái nú inni hjá einni helstu menningarmiðstöð borgarinnar.
Allir fundir og kvæðalagaæfingar félagsins hefjast stundvíslega kl. 20.00 og lýkur kl. 22.30. Félagar eru hvattir til að mæta á sem flesta fundi og ekki gleyma æfingunum því þar geta menn kynnst betur innviðum félagsins og sögu. Einnig eru félagar hvattir til að taka með sér gesti, bæði á fundi og æfingar, því fundir Iðunnar eru öllum opnir.
Sjá nánari dagskrá á www.rimur.is
2010